Þegar allt hringsnýst í xxxhausnum

Jón Magnússon skrifar:
Pétur Marteinsson foringi Samfylkingarinnar í Rvk. ritar í Mbl í gær. Sennilega hefði hann gert betur að láta gervigreindina um pólitískar skilgreiningar um andstæður hægri og vinstri. Það hefði alla vega ekki komið jafn ambögulega út.
Allt snýst á haus í skilgreiningum frambjóðandans og e.t.v. er það skiljanlegt þar sem hann er fyrir svo stuttu búinn að varpa trúnni á samkeppnisþjóðfélagið fyrir róða og genginn sósíalismanum á hönd þar sem markaðsbúskapurinn og samhyggjan gildir umfram valfrelsi einstaklingsins.
En þó Pétur Marteinsson hafi setið í kjöltu Dags B. fyrrum borgarstjóra við pólitíska uppfræðslu þá þvælast hlutirnir fyrir honum, svo mjög að kennslunni hlítur að hafa verið mjög ábótavant eða nemandinn mjög tregur.
Í upphafi segir nýbakaði sósíalistinn:
"Hægri menn virðast stundum gera ráð fyrir því að allir séu eins og hafi sömu þarfir."
Hver skyldi hafa komið þessari firru inn í höfuðið á manninum. Það eru einmitt hægri menn sem berjast fyrir frelsi einstaklingsins og telja það grundvallaratriði að skapa skilyrði fyrir fjölbreytt þjóðfélag til að hver einstaklingur geti fundið farveg fyrir hæfileika sína á meðan hugmyndafræði sósíalismans byggir á hóphyggjunni.
Við sem erum til hægri í stjórnmálum viljum að einstaklingurinn fái að njóta sinna verka. Að einstaklingurinn fái tækifæri til að byggja sér sína framtíð á grundvelli hæfileika sinna, en það krefst þess að athafnafrelsið sé sem mest, til að hver einstaklingur geti verið sinnar gæfu smiður.
Við viljum afnema boð og bönn og draga úr skattheimtu til að einstaklingurinn ráði meiru um fjármál sín og framtíð. Mestu framfarir og bestu lífskjör eru í löndum sem hafa þessar grundvallarreglur einstaklingshyggjunar að leiðarljósi.
Þegar öfugsnúinni skilgreiningu nýja tækifærissósíalistans, sem auðgast hefur á lóðabraski að því er sagt er, sleppir, þá kemur í ljós einmitt það sem skilur hægra fólk frá vinstra fólki. Við hægra fólk viljum að allir geti átt jafnan rétt á að koma sér þaki yfir höfuðið, en þurfi ekki að vera leiguliðar allt sitt líf. Við virðum hins vegar valfrelsi fólks ólíkt sósíalistunum.
Við viljum ekki að nánast öllum lóðum í Reykjavík sé úthlutað til leigufélaga en einstaklingurinn eigi þess ekki kost að koma sér þaki yfir höfuðið með eigin dugnaði og hugviti.
En sósíalistinn í fyrsta sæti Samfylkingarinnar er á annarri skoðun og miðar við að ungt fólk eigi ekki annan valkost en að vera leiguliðar að sjálfsögðu í því sem kallað er félagslegt húsnæði. Stefna frambjóðandans byggir því á, að þarfir nýrra leigjenda séu þær sömu. Allir fari á hjóli, þar sem ekki er gert ráð fyrir bílum í nýju leiguíbúðunum. Samfylkingin boðar í raun nauðhyggju andstöðunnar við einkabílinn og nauðsyn samfélagslegra samgangna jafnvel þó að aðeins 4% borgaranna velji eða vilji þann valkost. Þetta heitir Pétur minn Marteinsson að reyna að þvinga alla til að vera eins, hvað svo sem fólk vill sbr. hugmyndafræði Samfylkingarinnar.
Svo er annað óháð pólitískri hugmyndafræði en staðeynd málsins. Pétur Marteinsson ætti að svara hvernig á því stendur að viðvarandi lóðarskortur hefur verið í Reykjavík frá því að áhrif Samfylkingarinnar fór að gæta í borgarmálum Reykjavíkur. Hvernig stendur á því að Reykjavík gerir ungu fólki enn erfiðara fyrir með því að bjóða unga fólkinu ekki upp á viðunandi lausnir í barna - og dagheimilismálum. Já og hvernig stendur á því að meginþorri Reykvíkinga þarf að eyða löngum tíma til að komast ferða sinna í borginni á degi hverjum.
Er það ekki annars vegar vegna óstjórnar ykkar í Samfylkingunni í tæpa tvo áratugi og þess að þið viljið steypa alla í sama mót í anda grundvallarstefnu Samfylkingarinnar andstætt hugmyndum okkar hægra fólks.
Við skulum gefa Samfylkingunni verðskuldað frí og leyfa þúsund blómum að blómstra þegar sósíalismanum hefur verið vikið frá völdum í Reykjavík.