Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík, segist hafa heyrt um notkun Heiðu Bjargar Hilmisdóttur borgarstjóra á innkaupakorti borgarinnar á sama tíma og aðrir, í vikunni. Hann hafi litið málið alvarlegum augum.
„Það er náttúrulega bara grundvallarkrafa að borgarbúar geti treyst því að það sé farið vel með skattfé og hverja einustu krónu af virðingu. Ég talaði við Heiðu og lagði áherslu á það sé mjög mikilvægt að leggja öll spilin á borðið og svara bara heiðarlega og hún hefur gert það núna,“ segir Pétur.
„Hún segist fara eftir öllum reglum um innkaupakortið og hefur skýrt allar færslurnar. Bara fínar útskýringar og mér finnst hún hafa svarað vel fyrir þetta,“ segir hann. Þó hafi verið bagalegt að það vantaði kvittanir og önnur fylgiskjöl í einhverjum tilfellum.
Virðist nýjung að borgarstjóri notist við innkaupakort
Pétur segir kortanotkun borgarstjóra greinilega nýjung sem setja verði í samhengi. „Þegar Einar Þorsteinsson tekur við þá byrjar hann að strauja kortið sem hafði ekki verið gert áður. Það hafði legið ósnert í 10 ár hjá Degi og svo tekur Einar við og byrjar að nota það og Heiða notar það líka.“
Eðlilegt sé að velta fyrir sér hvort það sé yfirhöfuð eðlilegt að notast við innkaupakort í þessum tilfellum.
„Maður getur alveg velt því fyrir sér hvort það séu nýjar starfsreglur eða hvort það sé eðlilegt að kjörnir fulltrúar eða borgarstjóri sé með kort. Það getur bæði verið hagræðing og einföldun að vera með kort,“ segir Pétur.
Borgarstjórar taki reglulega á móti erlendum gestum og þurfi þá að leggja út fyrir mat og öðru slíku. Í tilfelli Dags hafi líklega verið notast við annað fyrirkomulag, segir Pétur.
Græða ekkert á umfjölluninni viku fyrir kosningar
Telurðu að tímasetningin beri þess merki að einhver sé að reyna að koma höggi á Samfylkinguna í borginni?
„Það er augljóst að við græðum ekkert á þessari umfjöllun og að hún komi viku fyrir kosningar er ekkert gott. En ég vil bara einblína á okkar málefni, við erum stolt af þeim og hlökkum bara til næstu viku,“ segir Pétur.