Björgunarsveitum hefur tekist að bjarga nokkrum úr rústum hruninna bygginga eftir jarðskjálfta í Kólumbíu á mánudag. Eftir því sem tíminn líður minnkar þó vonin um að fólk finnist á lífi.
Minnst 216 eru látnir. Talan var lækkuð úr 254 í gær. Þeir verða þó líklega fleiri þar sem yfir 3.800 er ennþá saknað og hátt í 2.600 eru slasaðir. Hermenn, slökkviliðsmenn og sjálfboðaliðar hafa unnið hörðum höndum að leit í rústum og í nokkrum tilvikum hefur það borið árangur.
Hér sést þegar hinni 32 ára Danielu Largo Sanchez er bjargað á lífi úr rústum í Pereira í gærkvöld. Viðstaddir fögnuðu björgun hennar ákaft. Móðir hennar sagði að hróp hefðu heyrst úr rústunum og hún hefði þá ásamt nágrönnum reynt að fjarlægja brak áður en björgunarmenn komu á staðinn. Daniela var föst í rústunum í 36 tíma.
Þá var litlu barni bjargað úr rústum í Cali eftir nokkurra klukkustunda aðgerðir.
Nokkur svona gleðitíðindi hafa fært björgunarfólki og almenningi von en eftir því sem lengra líður frá skjálftanum dvínar vonin um að fólk finnist á lífi.
Aðstæður til björgunarstarfa verða ekki auðveldari. Fjöldi bygginga eyðilagðist og björgunarfólk hefur lítinn aðgang að tækjabúnaði til að lyfta braki. Enn er þó unnið af kappi, bæði í Pereira og Cali, meðal annars með aðstoð hunda.
Umfang skemmdanna liggur líklega ekki fyrir strax. Sterling Palacios, umhverfisverndarfrömuður í Choco-héraði sem er næst upptökum skjálftans, segir að áhrif jarðskjálftans liggi ekki fyrir fyrr en eftir nokkrar vikur. Þó sé ljóst að þau séu gríðarleg.