Stríðs­fangar barðir og beittir kyn­ferðis­legu of­beldi - Vísir

Stríðs­fangar barðir og beittir kyn­ferðis­legu of­beldi - Vísir

Stríðs­fangar barðir og beittir kyn­ferðis­legu of­beldi - Vísir

Þetta er meðal þess sem kom fram í máli Claudiu Fuentes Julio, eins af yfirmönnum Mannréttindaráðs SÞ, á fundi Öryggisráðsins í gær.

Julio sagði að á fyrstu sex mánuðum þessa árs hefði dauðsföllum óbreyttra borgara fjölgað um 37 prósent, samanborið við sama tímabil í fyrra.

Hún sagði einnig að rannsakendur ráðsins hefðu frá árinu 2022 rætt við 910 úkraínska stríðsfanga og 403 óbreytta borgara en mikill meirihluti þeirra sagðist hafa orðið fyrir ofbeldi í haldi. Rúmlega 95 prósent stríðsfanganna og um 85 prósent borgaranna sögðust hafa verið pyntaðir eða beittir ofbeldi og margir sögðu það ítrekað hafa gerst.

Þeir sögðu einnig frá kynferðislegu ofbeldi og ómannúðlegum aðstæðum, þar sem fangarnir fengu ekki að borða eða læknisaðstoð, svo eitthvað sé nefnt.

Úkraínskur stríðsfangi fluttur á sjúkrahús eftir fangaskipti.EPA/MAXYM MARUSENKO

Kerfisbundin misþyrming

Úkraínskir stríðsfangar sögðu að þeir hefðu ítrekað verið barðir til óbóta með kylfum og beltum. Þeim hafi verið gefið raflost, hundum hafi verið sigað á þá og að fangaverðir þeirra hafi oft þóst ætla að taka þá af lífi.

Þá sögðu þeir einnig frá því að mörgum þeirra hefði verið nauðgað og hópnauðgað og þeir beittir annars konar kynferðislegu ofbeldi. Þeir hafa verið barðir í kynfærin og þeim gefið raflost í þau og geirvörturnar.

Flestir þeirra sögðu að þeir hefðu fengið lítið af mat og maturinn sem þeir fengju innihéldi oft pöddur eða rusl og brak.

Þá sögðust fangarnir hafa verið illa klæddir og hýstir í köldum og skítugum klefum þar sem þeir veiktust en margir fengu berkla og húðsjúkdóma sem leiddu til sársaukafullra sára.

Þeim var einnig meinað að sofa og þvingaðir til að standa eða reyna á sig í langan tíma.

Starfsmenn mannréttindaráðsins hafa einnig skráð aftöku á í það minnsta 129 úkraínskum stríðsföngum í haldi Rússa og hafa að minnsta kosti 48 dáið í haldi, eftir pyntingar eða annars konar misþyrmingar.

Varnarmálaráðuneyti Rússlands tilkynnti á dögunum að búið væri að stofna sérstaka hersveit sem ætti að vera skipuð úkraínskum stríðsföngum. Slíkt er brot á Genfarsáttmálanum um meðferð stríðsfanga.

Sjá einnig: Se­ag­al braut gegn Genf­ar­sátt­mál­an­um á her­numd­um svæð­um í Úkra­ín­u

Sveitin mun einnig, samkvæmt Rússum, vera skipuð úkraínskum mönnum sem sagðir eru hafa gengið til liðls við Rússa.

Óbreyttir borgarar pyntir

Mannréttindaráðið áætlar að Rússar haldi rúmlega sextán þúsund óbreyttum úkraínskum borgurum í haldi, við slæmar aðstæður. Margir sögðust hafa berið beittir pyntingum og annars konar ofbeldi, eins og kynferðislegu ofbeldi.

Sömuleiðis sögðust þeir hafa fengið lítinn mat, litla sem enga læknisþjónustu og að heilt yfir hefði þeim verið haldið við hræðilegar aðstæður.

Sjá einnig: Látinn horfa á her­menn nauðga óléttri móður sinni og kærustu

Julio sagði í ávarpi sínu í gær að starfsmenn Mannréttindaráðsins hefðu sérstakar áhyggjur af því hvernig komið væri fram við konur í haldi Rússa. Vitað sé til þess að að minnsta kosti tvær ófrískar konur hafi misst fóstur eftir að hafa verið beittar ofbeldi í haldi.

Þá hafi konur verið þvingaðar til að vera naktar á meðan þær voru á blæðingum.

Fá ekki aðgang að föngum í Rússlandi

Rætt var við þessa fanga eftir að þeim hafði verið sleppt úr haldi Rússa, þar sem rannsakendur SÞ fá ekki aðgang að hernumdum svæðum Rússa í Úkraínu né að Rússlandi sjálfu. Sameinuðu þjóðirnar og starfsmenn Rauða krossins fá aðgang að rússneskum stríðsföngum í haldi Úkraínumanna.

Þegar kemur að rússneskum hermönnum í haldi Úkraínumanna hafa starfsmenn Mannréttindaráðsins rætt við 816 þeirra og 57 fanga frá öðrum ríkjum. Um helmingur þeirra sagðist hafa verið beittur ofbeldi og þá í flestum tilfellum á víglínunni, eftir að þeir voru fyrst handsamaðir.

Julio sagði að það ofbeldi sem rússneskir stríðsfangar sögðust hafa orðið fyrir væri af allt öðrum skala en það ofbeldi sem úkraínskir stríðsfangar væru beittir. Eðlismunur sé þar á.

Eftir að þeir eru komnir í fangabúðir er að mestu komið vel fram við þá, í samræmi við alþjóðasamþykktir, samkvæmt þeim sem rætt hefur verið við. Rannsakendur Mannréttindaráðsins segja að aðstæður rússneskra stríðsfanga í Úkraínu hafi skánað frá 2022.

Óttast að vera sendir aftur til Rússlands

Menn frá öðrum ríkjum en Rússlandi og hafa barist fyrir Rússa segjast margir óttast það að verða sendir aftur til Rússlands, þar sem þeir hafi aldrei ætlað sér að verða hermenn. Margir héldu því fram að hafa verið plataðir eða þvingaðir til herþjónustu.

Þeir óttast einnig að vera sendir til heimaríkja sinna, þar sem þeir gætu átt von á ákærum.

Fregnir hafa um nokkurt skeið borist af því að Rússar hafi í sífellt meira mæli leitað til Afríku og Asíu að nýjum hermönnum til að fylla upp í raðir sínar.

Fjallað hefur verið um það áður á Vísi.

Sjá einnig: Rýnt i stöðuna í Úkraínu - Gífurlegt mannfall en litlar breytingar á víglínunni

Í janúar birtu rússneskir hermenn myndband á netinu sem sýndi Francis Ndung‘u Ndarua frá Kenía. Hann hafði farið til Rússlands í fyrra og ætlaði að fá vinnu sem rafvirki. Fjölskylda hans í Kenía missti fljótt sambandið við hann en í desember fékk móðir hans senda mynd af honum en þar var hann að vara aðra frá Afríku við að fara til Rússlands.

Skömmu síðar var áðurnefnt myndband birt á netinu en þar mátti sjá Francis í herbúningi og var búið að festa stóra jarðsprengju framan á hann.

Francis virtist hræddur á myndbandinu þar sem rússneskumælandi maður jós rasískum fúkyrðum yfir hann og sagði að hann yrði notaður sem dósaopnari á varnir Úkraínumanna. Svo virðist sem Francis hafi verið þvingaður til að hlaupa óvopnaður og með sprengju fasta framan á sér í átt að víglínu Úkraínumanna.

Myndbandið af Francis má sjá hér að neðan. Hvar hann er í dag er ekki vitað. Rætt var við fjölskyldumeðlimi hans fyrir frétt PBS sem birt var í síðasta mánuði en þau höfðu ekkert frétt frá því myndbandið var birt.

Myndbandið getur vakið óhug hjá lesendum.

„Áróðursherferð“ gegn Rússlandi

Á fundi öryggisráðsins í gær sagði Maria Zabolotskaya, aðstoðarsendiherra Rússlands gagnvart Sameinuðu þjóðunum, fundinn hluta af áróðursherferð gegn Rússlandi, sem fjármögnuð væri af NATO. Hún sagði að markmiðið væri að grafa undan mögulegum friðarviðræðum og réttlæta árásir Úkraínumanna í Rússlandi.

Hún hélt því einnig fram að Rússar kæmu fram við stríðsfanga í þeirra haldi í samræmi við alþjóðasamþykktir og að rússneskum stríðsföngum væri misþyrmt í haldi Úkraínumanna.

Engar viðræður hafa átt sér stað um nokkuð skeið og hafa ráðamenn í Rússlandi ekki gefið til kynna að þeir hafi nokkurn áhuga á að láta af kröfum sínum.

#barðir #beittir #kynferðislegu #ofbeldi #stríðsfangar

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262919860d/stridsfangar-bardir-og-beittir-kynferdislegu-ofbeldi

📰 Aðrar fréttir

„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
„Bara, hvað dettur gömlu fólki í hug að gera?“ - Vísir
Félagið býður upp á fjölbreytt félagsstarf, þar sem flestir geta fundið vettvang við sitt hæfi og er markmið þess að fyrirbyggja félagslega einangrun ...
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ný gögn: Ófundinn AR-15 var meðal þess sem tengdi föður ríkislögreglustjóra við hryðjuverkamálið
Bréf Sigríðar Bjarkar Guðjónsdóttur ríkislögreglustjóra til ríkissaksóknara sýnir að ófundinn AR-15 riffill var meðal þeirra atriða sem leiddu rannsók...
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
📅 16.08.2026 👁️ 0
New premium cinema set to open in Gran Canaria this October
Cinema is returning to El Muelle Shopping Centre in Las Palmas this autumn, with Odeon Multicines planning to open a new state-of-the-art complex in O...
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
📅 16.08.2026 👁️ 0
Spænsk orrustuþota skaut niður dróna í Rúmeníu
Spænsk F-18 orrustuþota skaut niður ómannaðan dróna í loftrými Rúmeníu, nærri borginni Galati við landamæri Moldóvu í nótt. Spænski flugherinn sinnir ...
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
📅 16.08.2026 👁️ 1
Krakkatía vikunnar: Tinni, flekar og stór augu - Vísir
Láttu á reyna hér fyrir neðan og sjáðu hversu mörg stig þú hefur upp úr krafsinu. Það er vissulega mikið í húfi en að sjálfsögðu er bannað að svindla....
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
📅 16.08.2026 👁️ 1
Þegar hringnum var lokað á Íslandi
Margir Íslendingar bera örugglega nostalgískar tilfinningar í brjósti í garð hringvegarins um Ísland. Slíkar minningar eru oft tengdar ferðalögum úr æ...
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
📅 16.08.2026 👁️ 1
Aðdáendur vottuðu Bonnie Tyler virðingu sína
Þúsundir aðdáenda velsku söngkonunnar Bonnie Tyler komu saman í Mumbles í suður Wales í gær til að votta söngkonunni virðingu sína þegar kista hennar ...
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
📅 16.08.2026 👁️ 1
Konur geta erft krúnuna eftir lagabreytingar
Konur geta nú erft krúnuna í furstadæminu Liechtenstein eftir lagabreytingu sem tilkynnt var um á þjóðhátíðardegi landsins í gær. Erfðaprinsinn Alois ...
77 fórust í ferjuslysi
📅 16.08.2026 👁️ 1
77 fórust í ferjuslysi
Yfirvöld í Simbabve segja að fjöldi látinna í ferjuslysi á Kariba-vatni fyrir vikunni sé kominn upp í 72. 77 var bjargað.Ferjunni hvolfdi á þriðjudag ...
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
📅 16.08.2026 👁️ 1
Ariana Grande leaves problems at home as her tour hits the UK
The star plays the first of 10 dates in London, after which she will "step back" from public life.
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
📅 16.08.2026 👁️ 1
Handtóku um 300 sem ætluðu yfir landamærin til Ceuta
Yfirvöld í Marokkó handtóku 294 í gær sem ætluðu að fara frá Marokkó yfir til spænsku hólmlendunnar Ceuta. Marokkóski fjölmiðillinn Le360 greinir frá....
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
📅 15.08.2026 👁️ 1
From making friends to managing money: Students' advice for this year's freshers
BC News asked current students about the worries they had before arriving at university how they overcame them.
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
📅 15.08.2026 👁️ 1
Men are turning to penis fillers, but are they safe?
Men who have had the procedure can expect 10-20% more girth for the next six to nine months - but it can go wrong.
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sumarflöggun allan sólarhringinn lýkur á miðnætti
Samkvæmt nýjum fánalögum er kvöldið í kvöld síðasta kvöldið sem flagga má íslenska fánanum allan sólarhringinn. Frá og með 16. ágúst gildir því aftur ...
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðust í skot­á­rás í banda­rískum há­skóla - Vísir
Skotárásin átti sér stað við nemendahúsnæði háskólans. Staðfest hefur verið að einn hinna særðu sé yngri en átján ára og að einn hinna særðu sé nemand...
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
📅 15.08.2026 👁️ 1
The influencers getting bitten chasing the perfect shark shot
Tayane Dalazen was on a shark-diving trip in Brazil when she was attacked.
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rescuers search for survivors of powerful Indonesia earthquake
Officials say a rapid assessment into the impact of the earthquake that destroyed hundreds of buildings and killed 47 is under way.
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þór­dís Kol­brún fékk hlýjar mót­tökur - Vísir
Þórdís hefur nú stigið fyrsta formlega skrefið sem nýr sendiherra, segir í tilkynningu sendiráðsins, en hún hefur afhent afrit af trúnaðarbréfi sínu t...
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
📅 15.08.2026 👁️ 0
Reform UK plan would overhaul welfare system with £50bn in savings
The party plans to release a full 50-page plan on Monday outlining their proposed changes were they to come to power.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn
The party's proposed changes were they to come to power include a replacement for the disability payments system Pip.
Reform UK plans to overhaul welfare system to save £50bn and replace Pip

European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
📅 15.08.2026 👁️ 1
European Athletics Championships 2026: Amy Hunt claims third gold as Dina Asher-Smith makes history
Amy Hunt claims the third gold medal of her bid for a historic quadruple and Dina Asher-Smith makes history as Great Britain win two relay golds at th...
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
📅 15.08.2026 👁️ 1
Komast ekki á afskekkt svæði eftir jarðskjálftann
Tjónið er mikið og þúsundir hafa flúið heimili sín eftir að jarðskjálfti af stærðinni 7,7 reið yfir Indónesíu í gærkvöld.Skjálftinn átti upptök sín un...
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ríkis­stjórn Talíbana fagnar fimm árum - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fagnað á götum Kabúl - Vísir
Stjórn Talíbana hefur frá valdtöku verið harðlega gagnrýnd af mannréttinda- og hjálparsamtökum. Þá nýtur ríkisstjórnin ekki viðurkenningar Sameinuðu þ...
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ekki samráð þegar ákvörðun hefur verið tekin og svo á að keyra að henni“
Magnús Þór Jónsson, formaður Kennarasambands Íslands, segir að kennarar verði að treysta því að innleiðingaráætlun ríkisstjórnarinnar varðandi breytin...
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hurricane Lala: Hawaii battles strong winds and rain as storm threat looms
If the storm makes landfall, it will be Hawaii's first direct hit by a hurricane in 34 years.
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þrengja Reykjaveg og loka tveimur götum við Laugar­nes­skóla - Vísir
Tillagan var samþykkt á fundi umhverfis- og skipulagsráðs í vikunni. Guðný María Jóhannsdóttir formaður ráðsins segir breytinguna til þess að tryggja ...
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
📅 15.08.2026 👁️ 1
„Ég held að allir faktorar séu betri núna en þeir voru síðast“
Sundkappinn Sigurgeir Svanbergsson hefur aðra atrennu að því að synda niður Lagarfljótið endilangt á miðnætti. Hann segir aðstæður margfalt betri nú e...
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
📅 15.08.2026 👁️ 1
Morocco detains dozens of migrants trying to cross into Ceuta - reports
Security had been stepped up amid suggestions on social media of a second mass crossing on Saturday.
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fjöldi öku­manna á von á kæru - Vísir
Í rassíu lögreglunnar reyndust sex ökumenn yfir löglegum mörkum og eiga þeir allir von á kæru. Þá reyndust nokkrir ökumenn til viðbótar vera undir áhr...
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
📅 15.08.2026 👁️ 1
Beitti konu sína heimilisofbeldi nóttina eftir að hann hlaut árs dóm
Landsréttur úrskurðaði karlmann í síðustu viku í áframhaldandi gæsluvarðhald til 27. ágúst vegna heimilisofbeldis sem hann er talinn hafa beitt sambýl...
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Merkja gervigreindartónlistarmenn sérstaklega til að aðgreina þá frá mennskum listamönnum
Stærsta tónlistarstreymisveita heims, Spotify, ætlar að búa til sérstakt merki til að aðgreina gervigreindartónlistarmenn frá mennsku tónlistarfólki. ...
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
📅 15.08.2026 👁️ 0
Hefði ekkert átt að koma kennurum á óvart
Breytingar á einkunnagjöf hefðu ekki átt að koma kennurum á óvart, segir Inga Sæland mennta og barnamálaráðherra sem gefur lítið fyrir fullyrðingar gr...
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Rósa vill sjá íslenska fánann oftar: „Fólk á að fá að flagga þegar því hentar“
Rósa Guðbjartsdóttir, þingkona Sjálfstæðisflokksins, segir að breytingar sem gerðar voru á fánalögunum á Alþingi fyrr á árinu hafi reynst vel. En betu...
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferða­menn með ógnandi til­burði á palestínsku kaffi­húsi - Vísir
Farah Al-Qasem, sem á Lava Sweets ásamt eiginmanni sínum Diyaa Atatri, segir mennina hafa komið inn í verslunina skömmu eftir að hún opnaði í morgun m...
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fimm særðir eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu
Fimm eru særðir, þar af einn lífhættulega, eftir skotárás í ríkisháskóla Virginíu-ríkis (e. Virginia State University) í Bandaríkjunum. Lögreglumenn b...
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelar gera loftárásir í Líbanon
Ellefu voru drepnir, þar af þrjú börn, og þrír særðust í loftárás Ísraela á suður Líbanon. Líbanska fréttastofan NNA segir að árásin hafi verið gerð á...
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
📅 15.08.2026 👁️ 1
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík
Ísraelskir ferðamenn sakaðir um ógnandi tilburði á palestínsku kaffihúsi í Keflavík Lava Sweets & Cafe palestínskt kaffihúsi í KeflavíkÓgnandi tilburð...
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
📅 15.08.2026 👁️ 1
Fire services 'under pressure' as evacuated residents still not home
Major incidents are declared across the UK including in Stourbridge, Sandwell and Pershore.
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann við Hestfjall
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á fjórða tímanum vegna manns sem féll við Hestfjall í Borgarfirði.Þyrlan er nú á staðnum og til stendur að híf...
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
📅 15.08.2026 👁️ 1
Sigmar tætir í sig málflutning Guðrúnar: „Mjög spes, vægast sagt“
„Að nota ágreining sem rök gegn aðferð til að leysa úr ágreiningi er mjög spes, vægast sagt,“ segir Sigmar Guðmundsson, þingflokksformaður Viðreisnar,...
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Þyrlan sækir slasaðan mann á Hest­fjall - Vísir
Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út að Hestfjalli við Skorradalsvatn á fjórða tímanum vegna manns sem hafði dottið og slasað sig.
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
📅 15.08.2026 👁️ 1
Biður Breta að staldra við eftir dauða Arday
Andy Burnham, forsætisráðherra Bretlands, hefur beðið landsmenn að taka sér andartak til íhugunar eftir að Jason Arday, prófessor við Cambridge-háskól...
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
📅 15.08.2026 👁️ 1
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels
Hundruð bókaðra fluga til Íslands eftir framkomu Samúels Samúel Guðmundsson, Piers Morgan og Shmuleys BoteachFramkoma Samúels stórjók áhuga á Íslandi ...
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Miðflokksmenn helmingi lík­legri til að segja já en Sjálf­stæðis­menn - Vísir
Þetta kemur fram í nýjum þjóðarpúlsi Gallup. Samkvæmt honum er svo mjótt á munum fylkinganna að hann er ekki tölfræðilega marktækur en 51,5% þeirra se...
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
📅 15.08.2026 👁️ 1
Reynslan sýnt að neyt­endur séu ekki til­búnir - Vísir
Guðrún Aðalsteinsdóttir, framkvæmdastjóri Krónunnar, kveðst styðja markmið nýrrar reglugerðar Evrópusambandsins um að minnka óþarfa umbúðir, auka endu...
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
📅 15.08.2026 👁️ 1
Frakkland orðið miðpunktur hrottalegra crypto-rána: Mannrán, pyntingar og afskornir fingur
Ný tegund skipulagðrar glæpastarfsemi hefur vaxið hratt samhliða aukinni útbreiðslu rafmynta. Í stað þess að reyna að brjótast í gegnum flókin öryggis...
Varaði við unglingum í Vesturbænum
📅 15.08.2026 👁️ 1
Varaði við unglingum í Vesturbænum
Varaði við unglingum í Vesturbænum Pablo Santos hvetur til yfirvegunar:„Ást og kærleikur til allra“ Mynd: Unsplash/Dominic Kurniawan Nýleg myndbirting...
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
📅 15.08.2026 👁️ 1
18-year-old arrested in south Tenerife for allegedly assaulting his mother
An 18-year-old man has been arrested in south Tenerife after allegedly physically assaulting his mother during an incident at their family home in Gra...