Spjallið með Frosta Logasyni
Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra, fjármálaráðherra og utanríkisráðherra, sest niður með Frosta Logasyni og ræðir þjóðaratkvæðagreiðsluna um áframhaldandi aðildarviðræður Íslands við Evrópusambandið.
Geir telur rangt að stilla kosningunum upp sem áhættulausri leið til að „kíkja í pakkann“. Verði niðurstaðan já sé ekki aðeins verið að kanna hvað ESB hafi fram að færa heldur þurfi Ísland að sækja formlega um aðild. Hann segir viðræðurnar geta kostað stórfé, tekið mikinn tíma frá íslenska stjórnkerfinu og stefnt framtíð EES-samningsins í óvissu.
Í viðtalinu varar Geir við því að Norðmenn kunni að fara sínar eigin leiðir ef Ísland beinir kröftum sínum að ESB-aðild. Í verstu sviðsmynd gæti Ísland staðið eitt eftir utan núverandi EES-fyrirkomulags—án þess að aðildarsamningur við ESB hafi náðst.
Geir telur jafnframt sáralitlar líkur á að Ísland fái varanlegar undanþágur frá sameiginlegri sjávarútvegs- og landbúnaðarstefnu ESB. Yfirráð Íslands yfir sjávarauðlindinni séu ekki aðeins venjulegt hagsmunamál heldur tilvistarspurning fyrir þjóðina.
Þá ræða Frosti og Geir um evruna, íslensku krónuna, verðbólgu, vexti og verðtryggingu. Geir hafnar því að hægt sé að fullyrða að ESB-aðild og upptaka evru færi íslenskum heimilum sjálfkrafa lægri vexti. Ísland þyrfti fyrst sjálft að ná tökum á verðbólgunni og uppfylla ströng skilyrði áður en evran kæmi yfirleitt til greina.
Geir rifjar einnig upp reynsluna af bankahruninu, neyðarlögunum og veikleikum evrópska fjármálaregluverksins. Hann telur að Ísland hafi náð sér hraðar eftir hrunið vegna þess að þjóðin hafði eigin gjaldmiðil og svigrúm til sjálfstæðra aðgerða.
Meðal þess sem rætt er um:
– Áhættuna sem Geir telur fylgja aðildarviðræðum
– Framtíð EES-samningsins og viðbrögð Noregs
– Sjávarútveg, landbúnað og fullveldi Íslands
– Líkur á varanlegum undanþágum frá reglum ESB
– Beinan kostnað Íslands af aðild
– Evru, krónu, verðbólgu og húsnæðisvexti
– Verðtryggingu og íslenska lánakerfið
– Bankahrunið, neyðarlögin og Icesave
– Öryggissamband Íslands og Bandaríkjanna
– Trump, Grænland og breytt alþjóðlegt ástand
– Hvort dollarinn kæmi jafnvel frekar til greina en evran
Geir segir mikla þjóðarhagsmuni í húfi og ætlar sjálfur að greiða atkvæði gegn áframhaldandi aðildarviðræðum 29. ágúst.
Fáðu þér áskrift og sjáðu alla þætti á Brotkast í fullri lengd inni á https://brotkast.is/askrift/