„Þetta er það mikil hækkun og kemur með svo skömmum fyrirvara að hún mun óhjákvæmilega setja strik í reikninginn,“ segir Skúli Mogensen í samtali við Morgunblaðið í dag en hann rekur sjóböðin í Hvammsvík þar sem mikil uppbygging var fyrirhuguð.Til stendur að hækka virðisaukaskatt á baðlón og vegna þess hefur frekari uppbyggingu í Hvammsvík verið slegið á frest. Á teikniborðinu er svokallað „boutique“-hótel sem er blanda af minni húsum og lágreistum klösum af herbergjum.
Skúli Mogensen ómyrkur í máli og setur fimm milljarða uppbyggingu á ís