Ólafur Aðalsteinsson, sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu, segir að enn séu 6.000 tæki rauðmerkt hjá þeim, sem voru 30.000 í upphafi árs. Það eru tæki sem ekki geta hringt í neyðarnúmer eftir að slökkt var á 2G- og 3G-sendum landsins.
Eigendur þessara tækja ættu að hafa fengið skilaboð þess efnis í símann sinn. Til skoðunar sé að senda bréfpóst til ítrekunar.
Nýverið náði íbúi á Skagaströnd ekki að hringja í Neyðarlínuna eftir aðstoð en hann gat notað símann til að hringja önnur símtöl. Skýringin er að sum símtæki eru þannig forrituð að þegar á að hringja neyðarsímtal fer síminn í neyðarham og leitar á 3G-kerfið, sem búið er að slökkva á hér á landi. Rannsókn á því máli stendur enn yfir, segir Ólafur. Beðið er eftir því að maðurinn eigi leið til Reykjavíkur til að láta yfirfara tækið sitt.
Reyndi fimm sinnum að hringja í 112 en ekkert gekk
Í kjölfar fréttaflutnings af málinu á Skagaströnd ítrekuðu Fjarskiptastofa og Neyðarlínan að notendur ættu að hringja í númerið 1280 til þess að athuga hvort símar þeirra virkuðu fyrir neyðarsímtöl. Einn viðmælandi fréttastofu segir að hún hafi reynt að hringja fimm sinnum í Neyðarlínuna á föstudagskvöld en ekki náð sambandi. Hún nái sambandi við 1280 en ekki við 112.
„Síminn var alltaf eins og hann væri að reyna að ná sambandi en hann bara náði ekki sambandi,“ segir Þórey Sverrisdóttir sem hafði hringt í 1280 stuttu áður. „Ég er búin að hringja í 1280 og samkvæmt því á ég að ná sambandi við Neyðarlínuna, það kom símsvari sem sagði mér það.“
Sendir lögreglunni bara tölvupóst
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hvatti borgarbúa, í gegnum samskiptamiðilinn Facebook, til þess fyrir nokkrum dögum að prófa að hringja í 1280 og kanna hvort símtæki þeirra næðu sambandi við Neyðarlínuna. Það stóð ekki á athugasemdunum til lögreglunnar, þar sem fólk kvartaði yfir því að ná ekki í gegn, eða ná í gegn til 1280 en ekki í 112, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Kári Harðarson, einn þeirra sem setti athugasemd við stöðuuppfærslu lögreglunnar, getur ekki hringt í Neyðarlínuna. Fréttastofa á þráðinn til Kára, í sama síma og hann getur ekki hringt í 112.
„Ég fór til NOVA og NOVA sögðu mér að ég ætti að kaupa nýjan síma. Mér finnst skrítið að kaupa nýjan síma þegar Neyðarlínan er eina númerið sem ég næ ekki í. Hann er fimm ára gamall og hann styður 5G. Ég er að tala við þig núna í gegnum 5G og VoLTE.“
Kári segist ekki ætla að beygja sig undir þetta og kaupa sér nýjan síma, hann reyni frekar að senda Neyðarlínunni tölvupóst. „Það er ákvörðunin mín að láta símann endast svona ár í viðbót. Netstuðningurinn er alltaf, það er í lagi með netið. Ég get bara sent lögreglunni tölvupóst,“ segir hann.