Nick, 32 ára, hefur lýst sig saklausan.
Rob og Michele voru stungin til bana á heimili sínu í Brentwood í Los Angeles þann 14. desember 2025. Nick var handtekinn innan nokkurra klukkustunda.
Kviðdómurinn notar orðalagið „lying in wait“ um aðdraganda morðanna, sem þýðir að Nick hafi setið fyrir foreldrum sínum eða falið sig áður en hann réðist á þau. Það er notað til að gefa til kynna að glæpurinn hafi verið skipulagður fyrirfram, sem þýðir að ef Nick verður fundinn sekur má dæma hann til dauða.
Saksóknarar hafa þó ekki gert upp við sig hvort þeir hyggjast fara fram á það.
„Þetta voru gríðarleg svik af hálfu manns sem var elskaður og treyst af þeim einstaklingum sem hann er sakaður um að hafa banað,“ sagði saksóknarinn Nathan Hochman í yfirlýsingu. Niðurstaða ákærukviðdómsins sé skref í átt að réttarhöldum og því að réttlætinu sé fullnægt.
Ekkert hefur komið fram um það hvers vegna Nick varð foreldrum sínum að bana. Þá hefur réttarmeinafræðingnum í málinu verið bannað að opinbera krufningarskýrslur.
Nick hefur farið fram á að fá peninga úr sjóði sem foreldrar hans stofnuðu fyrir hann til að fjármagna málsvörn sína. Umsjónarmenn sjóðsins hafa neitað. Ekki er um að ræða arf, heldur er um að ræða fjármuni sem áttu að renna til Nick jafnvel þótt foreldrar hans væru enn á lífi.
Jake Reiner, eldri bróðir Nick, skrifaði í apríl síðastliðnum að morðið á foreldrum þeirra og sú staðreynd að bróðir hans væri grunaður í málinu væri „vakandi martröð“.