Byggingar í höfuðborginni Caracas hrundu til grunna í jarðskjálftanum. Upplýsingar um manntjón og umfang eyðileggingar liggja ekki fyrir. Myndir frá borginni sýna að sums staðar hafa hús gjöreyðilagst.
Bandaríska jarðfræðistofnunin telur töluverðar líkur á miklu manntjóni og mikilli eyðileggingu eftir skjálftana. Þá eru líka taldar líkur á að stórir eftirskjálftar komi til með að fylgja stóru jarðskjálftunum sem urðu í kvöld.
Stofnunin segir 44% líkur á að dauðsföll eftir jarðskjálftana geti orðið fleiri en 10 þúsund. 30% líkur eru á að þau verði fleiri en 100 þúsund.
Gott kvöld.
Tveir stórir jarðskjálftar riðu yfir Venesúela með tæplega mínútu millibili rétt eftir klukkan tíu að íslenskum tíma í kvöld.
Sá fyrri var 7,2 að stærð en sá seinni 7,5.
Flóðbylgjuviðvaranir voru gefnar út í Venesúela og nokkrum eyríkjum í Karíbahafinu, þar á meðal Puerto Rico, Jómfrúaeyjum og Kúrasaó. Þær hafa verið afturkallaðar.
Myndir frá höfuðborginni Caracas sýna mikla eyðileggingu en þó nokkur fjöldi bygginga hrundi í jarðskjálftunum.
Ég heiti Grétar Þór Sigurðsson og ætla að flytja ykkur helstu tíðindi frá Venesúela í nótt.