Spider-Man: Brand New Day, fjórða myndin um Köngulóarmanninn með Tom Holland í aðalhlutverki, var frumsýnd fimmtudaginn 27. júlí og átti þá aðsóknarmestu opnunarhelgi frá upphafi.
Sjá einnig: Köngulóarmaðurinn slær sögulegt met
Köngulóarmannsæðið hefur haldið áfram síðustu vikuna, myndin halaði inn rúmum 380 milljónum dala á heimsvísu um helgina og trónir á toppnum yfir vinsælustu myndir heims. Alls hefur kvikmyndin halað inn 1,67 milljarði dala, mun vafalaust fara yfir tvo milljarða dala næstu helgi og komast á topplistann yfir fimm aðsóknarmestu myndir sögunnar áður en langt um líður.
Spurningin er bara hvort hún nái að ógna efstu þremur sætunum sem eru skipuð Avatar (2009), Avengers: Endgame (2019) og Avatar: The Way of Water (2022). Takist henni það gæti hún orðið fyrsta kvikmyndin sem halar inn meira en þremur milljörðum í kvikmyndahúsum.
Köngulóarmaðurinn er ekki sá eini sem hefur trekkt fólk í kvikmyndahús því The Odyssey í leikstjórn Christophers Nolan, sem var frumsýnd tveimur vikum fyrr, nýtur enn vinsælda. Ódysseifskviðan fór yfir milljarð dala-múrinn um helgina, hefur sankað að sér hálfum milljarði dala í Bandaríkjunum og 1,1 milljarði á heimsvísu.
Þar með fór myndin fram úr tveimur vinsælustu kvikmyndum Christophers Nolan, The Dark Knight Rises (2012) sem endaði með 1,08 milljarð dala í miðasölu og The Dark Knight (2009) sem endaði með 1,008 milljarð dala.
Gríska epíkin er þegar orðin aðsóknarmesta IMAX-kvikmynd sögunnar og eru miðar á myndina í IMAX-sölum víða uppseldir fram í miðjan september. Þar að auki hefur kvikmyndin ekki enn verið sýnd í Kína sem er næststærsti bíóhúsamarkaður heims.
Vinsældir kvikmyndanna tveggja hafa þó gert að verkum að aðrar myndir sem hafa verið frumsýndar nýverið hafa fallið í skuggann. Ef horft er til væntanlegra kvikmynda er ekki margt sem getur skákað risunum tveimur, það er helst að Hvolpasveitin: Risaeðlumyndin geti stolið áhorfendum af Köngulóarmanninum.