Donald Trump Bandaríkjaforseti er kominn til Peking, höfuðborgar Kína, og fundar á morgun með forseta landsins Xi Jinping.
Þetta er í fyrsta sinn í nær áratug sem forseti Bandaríkjanna heimsækir Kína. Trump og sendinefnd hans hlutu hlýjar móttökur við komuna til Beijing í morgun. Með Trump í för eru Elon Musk, forstjóri Teslu, og Jensen Huang, forstjóri Nvidia. Búist er við að Xi og Trump ræði um viðskipti landanna, Íran og stöðu Taívans á fundi sínum.
Trump sagði Xi hafa staðið sig vel í stríði Bandaríkjanna við Íran og var jákvæður í garð hans þegar hann talaði við fréttamenn fyrir brottför í gær.
„Hann hefur verið nokkuð góður, ef satt skal segja. Sjáið bara herkvína, ekkert mál. Þeir fá mikið af sinni olíu frá þessu svæði. Það hafa ekki verið vandamál og hann er vinur minn.“
Trump kvaðst vongóður um að eitthvað gott ætti eftir að koma út úr heimsókninni, hann og Xi hefðu náð vel saman.
Líklegt að Trump fái Kínverja til þess að þrýsta á Írani
Helgi Steinar Gunnlaugsson, blaðamaður og alþjóðastjórnmálafræðingur, segir að frá árinu 2017 hafi spennan milli landanna aukist til muna, mikill munur sé þó á stöðu Kína frá því frá seinustu heimsókn.
„Kína er í raun í mun sterkari stöðu en landið var áður fyrr. Vissulega hafa verið mikil tengsl á milli en Bandaríkjamenn hafa t.d. dregið verulega úr beinum fjárfestingum til Kína og á sama tíma hafa Kínverjar verið duglegir að finna aðra markaði.“
Helgi telur líklegt að Íran verði Trump ofarlega í huga, vitað sé að Kínverjar séu háðir innflutningi á olíu, um 50% allrar þeirrar olíu sem flutt er til Kína sigli um Hormússund.
„Það má alveg búast við því að Trump muni nota það til þess að þrýsta kannski á Kína til þess að fá Íran til þess að semja.“