Lögreglan í Vestmannaeyjum óskar eftir vitnum að líkamsárás er átti sér stað á Brekastíg um kl. 19:30, laugardaginn 1. ágúst síðastliðinn. Kemur þetta fram í tilkynningu á Facebook-síðu lögreglunnar.Þar var brotaþoli sleginn hnefahöggi í höfuðið af óþekktum aðila sem svo fór í burtu. Brotaþoli var fluttur af vettvangi í sjúkrabifreið.
Leita vitna að líkamsárás í Eyjum