„Ef það heldur áfram að vera svona hryllilega heitt í Suður-Evrópu þá held ég að árgangurinn 26 sé eitthvað sem maður þurfi frekar að kaupa frá Norður-Evrópu,“ segir vínfræðingurinn Sóley Björk Guðmundsdóttir við mbl.is. „Þá verður þetta bara mjög slæmur árgangur vegna alltof mikils hita.“
Sóley er starfandi vínfræðingur og býr í Barselóna.
„Ég er svona úber nörd,“ segir hún. „Ég lærði vínfræði hérna í Barselóna og ég er að taka framhaldsnám, hæstu gráðu frá Wine and Spirit Education Trust í London. Við erum handfylli af Íslendingum, ég klára núna í haust og er held ég númer tvö eða þrjú sem klára þetta nám.“
Loftkælingin hefur ekki alveg undan
„Fólk hér er vant hitabylgjum, en þær koma yfirleitt ekki fyrr en í lok júlí og í ágúst, fólki líst ekkert á hvernig sumarið á eftir að verða og hvaða áhrif það hefur ef það verður svona heitt mjög lengi,“ segir Sóley.
„Húsin eru flest mjög illa einangruð og rafmagn dýrt svo þó að loftkæling sé til staðar, stór hluti íbúða eru ekki með loftkælingu, þá er ekki víst að fólk hafi efni á að nota hana mikið, ég tala nú ekki um þegar kuldinn sleppur út um þunna veggi og einfalt gler.“
Blessunarlega eru ekki nema rúmlega 30 gráður í Barselóna en það er um og yfir 40 víða í Katalóníu, meðal annars á mikilvægum vínsvæðum.
„Kosturinn við þessa hitabylgju er, miðað við síðustu ár, að það er ekki takmörkun á vatnsnotkun. Það var neyðarástand vegna þurrks í fjögur ár og átta mánuði sem var aflétt í fyrra. Fyrir þann tíma voru allar sundlaugar lokaðar og sturtur á ströndinni og allt. Núna er allavega vatn,“ segir hún enn fremur.
„En það er mjög heitt. Ég er að svitna standandi heima hjá mér og ég er með loftkælinguna í fullum gangi, hún hefur ekki alveg undan.“
„Þeir eru að basla við hitann“
Sóley ræddi nýlega við Jaume Balaguer, eiganda og víngerðarmann hjá Bagaluer í Cabra, vínhúsi sem hún vinnur mikið með.
„Yndislegur maður sem býr til vín með pabba sínum í Priorat, þekktu rauðvínssvæði í hæsta gæðaflokki skammt frá borginni. Hann sagði: ef ég tryði á Guð, þá væri ég núna að biðja á hverjum degi,“ segir Sóley.
„Þeir eru að basla við hitann núna. Það slapp af því að það rigndi aðeins í vetur, meira en vanalega, en fyrir þetta síðasta ár hefur verið mjög alvarlegur þurrkur í næstum því fimm ár þannig að það er ennþá grunnvatn, sérstaklega fyrir fólk sem er með eldri vínvið, af því að eldri vínviður teygir sig lengra ofan í jörðina. En það er farið að vera erfitt fyrir ungan vínvið, eins, tveggja, þriggja ára gamalan, af því að ræturnar ná svo stutt niður. Þær ná bara í yfirborðsvatnið. Gamli vínviðurinn nær að teygja sig lengra niður og nær þá í eitthvað frá vetrinum.
Enn sem komið er er þetta í lagi en málið er að ef hitinn helst of hár áfram þá er hætta á að ávöxturinn verði ofþroskaður og misþroskist. Það vantar sýru og það verður svona sultubragð af honum, það er bara eins og þú sért að borða vínberjasultu og það er ekki eitthvað sem þú vilt í rauðvíni.“
Bannað að vökva
Jafnvel ef það er of hár hiti gætu þeir lent í að fá vanþroskuð ber af því að plantan áttar sig á því að eitthvað er að og reynir að bjarga sjálfri sér og sleppir því að senda næringu út í berin, sem ná þá ekki að þroskast.
„Það er hættan sem þeir eru að eiga við núna, en þetta er sérstaklega vandamál í Frakklandi akkúrat núna af því að það er enn þá heitara þar og ef það er of mikill hiti þá bara fellur uppskeran.“
Ungu plönturnar geti hreinlega dáið vegna reglna sem eru í gildi mjög víða um Evrópu sem kveða á um að það megi ekki vökva vínekrurnar, vegna þess að hver árgangur á að endurspegla veðurfar síns tíma.
„Það kemur asnalegur þroski“
„Þetta er alveg komið í það að ungar plöntur eru farnar, á heitustu svæðunum, að verða fyrir erfiðleikum og ef þetta heldur áfram þá verður uppskerubrestur af því að plantan nær ekki að þroskast,“ heldur Sóley áfram.
Vinkona Sóleyjar framleiðir vín innar í landinu, þar sem hitinn náði upp fyrir 30 gráður í maí.
„Það er alltof snemmt,“ segir Sóley. „Það kemur asnalegur þroski með þessum svakalegu hitasveiflum í vínberin og vínviðinn sem að hefur eðlilega áhrif á ávöxtinn þegar hann er svo uppskorinn.“

