Stórfelld uppbygging Bláa lónsins í Þjórsárdal er ein stærsta fjárfestingin í íslenskri ferðaþjónustu um þessar mundir. Þar verður gestastofa, hótel og baðlón.
Ríkið og Bláa lónið skrifuðu í dag undir sérleyfis- og lóðarleigusamninga til 40 ára um uppbyggingu og rekstur ferðaþjónustu í Þjórsárdal. Heildarkostnaður við framkvæmdina er um 20 milljarðar króna, sem er ein stærsta einstaka fjárfesting í ferðaþjónustu hér á landi.
Sigríður Margrét Oddsdóttir forstjóri Bláa lónsins segir að fyrirtækið sjái fyrir sér að Þjórsárdalur verði einn af megináfangastöðunum á Íslandi, drjúgur hluti ferðamanna og Íslendingar eigi eftir að heimsækja dalinn.
Ísland eigi fullt erindi á heimssviðið
Í Rauðukömbum í Þjórsárdal verður, að hálfu inngrafið, 40 herbergja hótel. Að því hefur verið lagður tíu kílómetra vegur. Úr fjallaböðum verður útsýni yfir dalinn og í gestastofu verður veitingastaður, upplýsingamiðstöð og sýning um sögu Þjórsárdals. Þá verða byggð þrettán smáhýsi og tjaldsvæði.
Stefnt er að því að hefja starfsemi að hluta næsta sumar og að ári síðar verði hún öll komin í gang. Sigríður Margrét segir að ferðavilji á heimsvísu hafi aldrei verið meiri.
„Ísland á svo sannarlega erindi á heimssviðið með sína einstöku náttúru og heilsu og vellíðan að leiðarljósi.“
Framkvæmdunum fylgir rask líkt og öðrum framkvæmdum og áhyggjuraddir hafa verið uppi um að óafturkræfar skemmdir verði á náttúrunni vegna framkvæmdanna. Sigríður segir fáa hafa jafn mikinn hag af því að vernda náttúruna líkt og Bláa lónið.
„Við höfum lagt alveg gríðarlega mikið á okkur til þess að vernda náttúruna í þessum framkvæmdum og við erum til dæmis með vottanir á hönnuninni á byggingunni hjá okkur sem eru algjörlega eru með þeim bestu sem hafa verið veittar á Íslandi.
Þjórsárdalur verði einn af megináfangastöðum Íslands
„Við sjáum það fyrir okkur að Þjórsárdalur verði einn af megináfangastöðunum á Íslandi,“ segir Sigríður. Fyrirtækið sjái fyrir sér að drjúgur hluti ferðamanna, ásamt Íslendingum, muni heimsækja Þjórsárdal á komandi árum.
Heita vatnið á Íslandi segir Sigríður vera líkt og kampavín í Frakklandi, það sé dásamlegt að Ísland sé þekkt sem heilsu- og vellíðunarland og að allir hafi gott af því að slaka aðeins á í lóni.