Flogið var með 94 farþega af skemmtiferðaskipinu Hondiusi frá Tenerife í gær. Skipið varpaði akkerum nokkuð frá landi og farþegarnir voru fluttir í land á bátum. Þaðan fóru þeir í rútur og var flogið með þá á brott. Alls voru um 150 manns í skipinu, farþegar og áhöfn. Tvær flugferðir með farþega, til Ástralíu og Hollands, eru á dagskrá í dag.
Spænskir farþegar voru fluttir til Madrídar í gær og varnarmálaráðuneytið birti myndband sem sýndi viðbúnaðinn. Sæti vélarinnar voru þakin plasti og gólfið líka. Þá mátti sjá stóra hitakassa í vélinni.
Tveir farþegar af skemmtiferðaskipinu hafa greinst með hantaveiruna eftir að þeir komu til síns heima. Þetta eru farþegar frá Bandaríkjunum og Frakklandi. Heilbrigðisyfirvöld í Bandaríkjunum segja að einn farþegi til viðbótar sé með einkenni smits. Fyllsta varúð hafi verið sýnd við flutning þeirra.
Heilbrigðisráðherra Frakklands segir að franski ríkisborgarinn sé í einangrun í París og að heilsa hans fari versnandi.
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin telur að fyrsti farþeginn hafi smitast í Argentínu áður en skipið lagði úr höfn þar 1. apríl. Líkur á útbreiðslu faraldurs séu litlar. Stofnunin mælir með 45 daga einangrun farþega skipsins.