„Við erum búin að svara því áður í fjölmiðlum að við erum ekki í neinum aðgerðum,“ segir Jón Þór Þorvaldsson, formaður Félags íslenskra atvinnuflugmanna (FÍA), um yfirlýsingu Icelandair um að margt bendi til þess að flugmenn séu í óformlegum verkfallsaðgerðum.
Icelandair hefur þurft að aflýsa tveimur flugferðum síðustu daga og fresta einni því ekki tókst að manna flugstjórnarklefa.
Jón Þór segir miður að flugmenn þurfi að svara þessum ásökunum í fjölmiðlum.
„Það verður líka að gera skýran greinarmun á verkfallsaðgerðum, formlegum eða óformlegum, og svo því hvort einhverjir einstakir einstaklingar séu ekki tilbúnir að hlaupa burt úr orlofi eða sínum frídögum til þess að bjarga einhverju skipulagi sem þeir höfðu enga aðkomu að því að gera,“ segir Jón Þór.
Hann segir FÍA hafa varað við því í tvö ár að þessi staða gæti komið upp.
„Það hefur verið gríðarlega mikið vinnuálag á sérstaklega ákveðnum hópi flugmanna og þegar það þverr þá er hætt við því að sveigjanleikinn, sem er sennilega eitt af því verðmætasta sem við hjá Icelandair eigum, að það sé þá kannski ekki eins aðgengilegt og það hefur verið.“
Í yfirlýsingu Icelandair í dag segir að flugmenn Icelandair búi við bestu kjör sem flugmönnum á Norðurlöndum bjóðast. Jón Þór segir aðspurður að kröfur flugmanna í kjaraviðræðum sé langt í frá að vera óraunhæfar. Það sé eitthvað annað sem skýri að kjaraviðræður séu ekki lengra komnar.
Næsti fundur FÍA og Icelandair hjá ríkissáttasemjara er á morgun. Jón Þór segir yfirlýsingu Icelandair ekki hafa áhrif á viðræðurnar.
„Við erum vanir því að fást við svona. Við látum þetta ekkert koma okkur úr jafnvægi. Þetta er bara hluti af þessu. Mönnum getur hitnað. Við erum tilbúnir að tala við Boga ef hann þarf að tala við okkur.“
Jón Þór segir verkfallsaðgerðir ekki hafa komið til tals hjá FÍA.