Fjölskyldulíf Mancel-fjölskyldunnar var ekki með eðlilegum hætti að mati systur Emeric Mancel. Hún segir fjölskyldulíf þeirra hafa minnt á líf fjölskyldu frá sjöunda áratugnum.
Þannig hafi fjölskyldufaðirinn Emeric, sem fannst látinn á hótelherberginu ásamt dóttur sinni í júní í fyrra, tekið allar ákvarðanir fyrir fjölskylduna, t.a.m. hafi Ming Ting Mancel ekki farið ein að versla fyrir heimilið heldur hafi Emeric alltaf verið með og greitt fyrir allt. Ming hafði enga aðkomu að fjármálum heimilisins.
Þetta kom fram í framburði Ericu Mancel, systur Emeric, á fjórða degi aðalmeðferðar í Edition-málinu svokallaða. Hún sagði bróður sinn hafa áður tjáð sér að Ming tæki engar stórar ákvarðanir er vörðuðu heimilislífið.
Aðspurð kvað hún bróður sinn stjórnsaman og að eiginkona hans og dóttir hefðu verið Emeric undirgefin.
Erica sagði að hún teldi að bróðir sinn hefði skipulagt alla Íslandsferðina þar sem hann hefði verið vanur að skipuleggja allt fyrir fjölskyldu sína. Hann hafði sent tölvupóst til Ericu þegar fjölskyldan var komin til Íslands þar sem hann sagði að fjölskyldan ætlaði að láta sig hverfa, öll þrjú.
Sagðist Erica þá vita að þau ætluðu að binda enda á eigið líf en Emeric lauk tölvupóstinum á orðunum „vertu sæl“. Erica tók fram að Emeric hafi ekki tilgreint hvar hann væri staddur í heiminum þegar hann sendi umræddan tölvupóst.
Sannfærð um að Emeric hafi skipulagt Íslandsferðina
Við upphaf skýrslutöku Ericu var hún spurð um tengsl sín við bróður sinn. Hún sagði þau hafa orðið náin á síðustu árum eftir að móðir þeirra lést en fjölskyldan hafði slitið tengslum við Ericu eftir að hún giftist fráskildum manni.
Aðspurð kvaðst hún ekki hafa verið eins náin Ming eða Cathrine. Sagðist hún hafa hitt bróður sinn oftast einan þar sem eiginkona hans og dóttir voru sjaldnast viðstödd.
Þegar hún var spurð út í heilsufar Emeric sagði hún að síðast þegar þau hittust árið 2025 hefði hann verið orðinn mjög veikur. Lýsti hún því að Emeric hefði verið með ófullnægjandi nýrnastarfsemi og að hann hefði þurft að fara í nýrnaskil þrisvar í vikur.
Sagði hún bróður sinn hafa verið þunglyndan á þessum tíma bæði vegna veikinda hans og ásakana systur hans um að hann hefði stolið fjölskylduarfi. Sagði hún þetta hafa orðið til þess að Emeric vildi ekki lengur lifa.
Sagðist Erica sannfærð um að Emeric hefði verið búinn að skipuleggja atburðinn á Edition-hótelinu áður en þau komu til landsins.
Taldi hún bróður sinn ekki hafa viljað að dóttir hans og eiginkona yrðu ein eftir á lífi þar sem Cathrine væri greindarskert og Ming hefði aldrei séð um fjármál heimilisins og hefði þá þurft að mæta ásökunum systur sinnar ein.
Hefði verið erfitt að búa ein
Erica sagði fyrir dómi að Cathrine hefði verið lítillega greindarskert vegna vansköpunar á heila. Þegar hún var spurð nánar út í þetta sagðist Erica vera starfandi læknir og að hún hefði verið viðstödd fund á spítalanum þegar Cathrine fæddist þar sem heilsufar hennar var til umræðu.
Lýsti Erica því að þegar Cathrine fæddist sýndu skannanir á heila hennar að heilinn hefði skroppið saman. Ekki var þá ljóst hversu mikil áhrif þetta myndi hafa á líf Cathrine en Erica sagði að þegar hún óx úr grasi fór ekki á milli mála að þroski hennar hafi verið hægari en annarra barna.
Tók hún þó fram að þegar hún hitti Cathrine á unglingsaldri þótti henni hún hafa góða greind og rakti það til góðs stuðnings foreldra hennar.
Var hún þá spurð hvort Cathrine hefði verið háð foreldrum sínum og svaraði hún á þá leið að það hefði verið erfitt fyrir Cathrine að búa ein. Hefði hún viljað það hefði hún trúlega þurft að búa á sambýli.