Ákveðið hefur verið að ljúka við útlagningu nýju neysluvatnslagnarinnar milli lands og Eyja, NSL-4. Lögnin, sem hefur verið nefnd almannavarnalögn, skemmdist um helgina meðan verið var að leggja hana.
Nú liggja fyrir niðurstöður forathugunar á skemmdunum. Það er niðurstaða hennar að það besta í stöðunni sé að klára útlagninguna.
„Í þeirri von að hægt verði að nýta hana að einhverju marki,“ segir Íris Róbertsdóttir, bæjarstjóri Vestmannaeyja, í samtali við fréttastofu
Hún segir að kostnaður við lögnina sjálfa og útlagningu hennar í sjó nemi um þremur milljörðum króna, en að enginn kostnaður muni þó falla á sveitarfélagið.
Íris leggur þó áherslu á að engin viðurkenning á ábyrgð á atvikinu eða tjóninu felist í ákvörðun um að láta ljúka verkinu.
Aðeins eru þrjú ár síðan eina vatnslögnin milli lands og Eyja skemmdist eftir að skip útgerðarfélagsins Hugins missti út akkeri.
Lögnin er enn skemmd, en veitir þó vatni til Eyja. Vestmannaeyjabær stendur í dómsmáli við útgerðarfélagið Hugin og tryggingafélagið VÍS vegna þessa.