Deilt um hversu brýn umhverfismál eru í borginni
Ari Edwald var eini oddvitinn sem ekki var tilbúinn að segja að umhverfismál væru brýn í borginni. Bæði hann og Hildur Björnsdóttir sögðu Reykjavík og Ísland standa framarlega í umhverfismálum, Einar Þorsteinsson gagnrýndi „sýndarmennsku“ í loftslagsmálum en Sanna Magdalena Mörtudóttir, Silja Sóley Birgisdóttir og Kristinn Jón Ólafsson sögðu umhverfismálin samtvinnuð samgöngum, húsnæði og skipulagi.
Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, var eini oddvitinn í borginni sem ekki tók undir það að umhverfismál væru brýn í borgarpólitík á kappræðum Heimildarinnar á þriðjudag. Hann tók þó fram að hann teldi sig umhverfissinnaðan. „Auðvitað er ég umhverfissinnaður,“ sagði hann, en bætti við að horfa yrði til þess hvar Ísland og Reykjavík stæðu í samanburði við önnur ríki og borgir.
Í kappræðum Heimildarinnar, sem fram fóru í beinni útsendingu frá Tjarnarbíó, voru oddvitarnir beðnir um að gefa merki með handauppréttingu hvort þessi mál væru brýn í borginni. Ari var sá eini sem rétti ekki upp hönd en Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokks, gerði það hikandi.
Þegar Ari útskýrði afstöðu sína vísaði hann sérstaklega til endurnýjanlegrar orku. „Það er ekkert land sem er neitt nálægt okkur í að við erum með 85 prósent af okkar orkunotkun …