Kjósendur þurfa að vera mjög vel vakandi yfir því hvaðan upplýsingarnar koma, hvers eðlis þær eru og sannreyna þær í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar. Þetta segir formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. Bagalegt sé að ekki hafi verið fyllt upp í glufur á íslenskum lögum um fjármögnun baráttuhópa og netmiðlun fyrir kosningarnar.
Ábendingar ÖSE fá ekki þinglega meðferð fyrir kosningarnar
Formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis segir miður að athugasemdir ÖSE um glufur í íslenskum lögum varðandi þjóðaratkvæðagreiðsluna fái ekki þinglega meðferð fyrir kosningarnar.
„Eins og væri ef þing væri að störfum,“ segir Bryndís Haraldsdóttir, formaður stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar Alþingis. „Þetta virðist vera sú leið sem að ríkisstjórnin vildi fara, að þingið væri ekki að störfum og að það væru þá frjáls félagasamtök sem stæðu fyrir umræðunni og áróðrinum og það er það sem við erum að sjá núna í sumar.“
„Fór að handahlaupum gegnum þingið í vor“
Ekkert geti komið í veg fyrir að fjársterkir aðilar, innlendir sem erlendir, fjármagni áróður í gegnum samtök utan stjórnmálaflokka án þess að kjósendur viti hver standi að baki.
„Þetta fór á ákveðnum handahlaupum í gegnum þingið þannig að ég held að þetta sé augljóslega eitthvað sem við þurfum að ræða eftir þjóðaratkvæðagreiðsluna. Það verða ekki neinar breytingar á lögum héðan af fyrir þessa atkvæðagreiðslu,“ segir Bryndís.
Betur hefði farið á því ef glufurnar sem ÖSE bendir á að séu í íslenskum lögum hefðu verið fylltar áður en blásið var til þjóðaratkvæðagreiðslunnar.
„Og ráðherra hefði í rauninni átt að fjalla um í sinni þingsályktunartillögu og vera jafnvel með einhverjar breytingar á lögum hvað þetta varðar. Ég held að það hefði farið betur á því því þá væri bara trúverðugleikinn meiri. Það er náttúrulega númer eitt, tvö og þrjú í lýðræðissamfélagi þar sem að við tökumst á og erum í kosningum að trúverðugleikinn sé allur. Það er alltaf hætta á því að nú gætu þessar kosningar farið þannig að það verði mjög mjótt á munum og þá verði einhverjum öflum kennt um í hvora áttina sem það hann að vera,“ segir Bryndís.
Stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd hafi ekki fengið neinar upplýsingar um hvort grunur sé um samhæfðar áhrifaaðgerðir eða sjálfvirka dreifingu efnis í tengslum við þjóðaratkvæðagreiðsluna.
„En við værum bara barnaleg að halda að slíkt gæti ekki gerst hér á landi eins og gerst hefur alls staðar annars staðar. Við sáum það til að mynda mjög sterkt í Brexit-kosningunum að þá var áróður í báðar áttir og það var áróður sem hægt var að rekja til ólýðræðislegra ríkja sem vilja í rauninni bara brjóta upp traust á lýðræði í okkar vestrænu samfélögum. Þannig að ég held að allir þurfi að vera mjög vel vakandi yfir því hvaðan upplýsingarnar koma, hvers eðlis þær eru og sannreyna þær og sannprófa,“ segir Bryndís.