Arion vill fá 14 milljónir frá Hafnfirðingi

Arion banki hefur höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur og krefst þess að einstaklingur verði dæmdur til að greiða bankanum rúmlega 14,1 milljón króna skuld, auk dráttarvaxta og málskostnaðar.
Krafan byggist á verðtryggðu skuldabréfi sem gefið var út í september 2016. Upphafleg fjárhæð lánsins var 10,6 milljónir króna og átti að endurgreiða það með 360 mánaðarlegum afborgunum.
Til tryggingar greiðslu skuldarinnar var fasteign í Hafnarfirði sett að veði með fyrsta veðrétti.
Samkvæmt stefnunni var gjalddagi lánsins 1. febrúar síðastliðinn ekki greiddur og var lánið í kjölfarið gjaldfellt. Eftirstöðvarnar námu þá 14.124.370 krónum, þar af var höfuðstóll rúmar 9,1 milljón króna og verðbætur tæpar 4,9 milljónir.
Stefnan verður birt í Lögbirtingablaðinu. Málið verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur 24. september næstkomandi. Bankinn krefst jafnframt dráttarvaxta frá 1. febrúar og greiðslu málskostnaðar.