Appelsínugul viðvörun vegna hita hefur verið gefin út fyrir stórt svæði á sunnanverðu Englandi. Viðvörunin gildir mestallan fimmtudaginn og gæti hitinn náð allt að 38 stigum. Breska veðurstofan segir í viðvörun sinni að hitinn gæti haft áhrif á samgöngur, innviði og heilsu fólks.
Viðvörunin nær til nokkuð stórs svæðis í Suður- og Austur-Englandi. Meðal borga innan þess eru Lundúnir, Oxford, Birmingham, Nottingham, Sheffield, Leicester og Cambridge.
Veðurstofan segir að fólk sem er viðkvæmt fyrir hita gæti fundið fyrir honum í formi hitakófs og annarra tengdra heilsukvilla. Þá gæti hitinn leitt til rafmagnstruflana og truflana á þjónustu við heimili og fyrirtæki.
Heilbrigðisyfirvöld hafa einnig gefið út viðvörun vegna hitans til heilbrigðisstarfsfólks. Hitinn sé líklegur til að leiða af sér mikið álag á heilbrigðiskerfið, þar á meðal fjölgun dauðsfalla.
Það fer að hlýna verulega í Bretlandi strax á morgun þar sem hitinn í Miðlöndunum og Suðaustur-Englandi verður á bilinu 31-33 stig. Á fimmtudaginn verður hitinn svo enn hærri.
Þessi viðvörun bendir til þess að hitamet í ágúst gæti fallið. Gildandi met er 36,4 stig og mældist á Heathrow árið 2020. Hitinn náði 38 stigum í hitabylgjunum sem fóru yfir England í júní og júlí.