Þetta kemur fram í tilkynningu frá Náttúruvárvakt Veðurstofu Íslands. Nokkrir smærri eftirskjálftar hafa fylgt.
„Þetta er stærsti skjálfti sem hefur mælst á svæðinu síðan í apríl 2021,“ segir í tilkynningunni. Þá mældist skja´lfti af stærð 3,6 á svipuðum stærðum.
Um er að ræða þekkt jarðskjálftasvæði en óálgengt að skjálftar þar mælist yfir einum að stærð. Veðurstofu hafa ekki borist tilkynningar um að skjálftinn hafi fundist í byggð.