Eftir sveitarstjórnarkosningarnar 2022 mynduðu Samfylking, Framsókn, Píratar og Viðreisn meirihluta en fyrir rúmu ári sleit Framsókn samstarfinu og var í kjölfarið myndaður meirihluti Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna.
Borgarstjórnarnir á liðnu kjörtímabili hafa verið þau Dagur B. Eggertsson, Einar Þorsteinsson og Heiða Björg Hilmisdóttir.
Þeir flokkar sem nú eru í framboði til borgarstjórnar Reykjavíkur eru:
- A listi - Vinstrið
- B listi - Framsóknarflokkurinn
- C listi - Viðreisn
- D listi - Sjálfstæðisflokkurinn
- F listi - Flokkur fólksins
- G listi - Góðan daginn
- J listi - Sósíalistaflokkur Íslands
- M listi - Miðflokkurinn
- P listi - Píratar
- R listi - Okkar borg
- S listi - Samfylkingin - jafnaðarflokkur Íslands
Þangað til fyrstu tölur berast sýnir grafið hér að neðan niðurstöður síðustu kosninga, það er árið 2022.