Kaupfélag Skagfirðinga hagnaðist um milljarða

Kaupfélag Skagfirðinga hagnaðist um 3,7 milljarða króna á síðasta rekstrarári, samkvæmt nýbirtum ársreikningi félagsins. Afkoman batnaði frá fyrra ári þegar hagnaður nam 3,3 milljörðum króna.
Þetta kemur fram í frétt Viðskiptablaðsins um málið.
Rekstrartekjur samstæðunnar jukust milli á milli ára og námu 71,5 milljörðum króna samanborið við 54,6 milljarða árið áður. Rekstrargjöld hækkuðu einnig og fóru úr 47,3 milljörðum króna í 61,9 milljarða.
Launakostnaður samstæðunnar jókst um nærri fimm milljarða króna á milli ára, úr 14,1 milljarði í 19 milljarða króna. Í árslok 2024 var eigið fé félagsins 60,8 milljarðar króna og heildareignir metnar á 93 milljarða króna.
Þórólfur Gíslason, kaupfélagsstjóri KS, var með 102.137.456 krónur í heildartekjur árið 2024 samkvæmt Hátekjublaði Heimildarinnar.