Bílaumboðið BL hefur tilkynnt um innköllun á fjórum tegundum Land Rover tengitvinnbifreiða (e. Plug in hybrid).
Tegundirnar sem um ræðir eru Land Rover Defender árgerðir 2021-2025, Range Rover Velar, árgerðir 2021-2026, Range Rover Evoque árgerðir 2020-2026 og Land Rover Discovery Sport árgerðir 2020-2025.
Í tilkynningu frá BL segir að innköllunin nái aðeins til sjö bifreiða sem BL flutti inn til landsins. Unnið sé að því að hafa samband við eigendur viðkomandi bifreiða og bóka tíma í viðgerð.
Samkvæmt BL er hætta á ofhitnun háspennurafhlöðu sem getur orðið til þess að kvikni í ökutækinu. Ástæðan er óljós en BL mun skipta um háspennurafhlöðu. Ekki er um hættilegan galla að ræða, að segir í tilkynningu frá BL.
Eigendum bifreiða af þessum gerðum er bent á að hafa samband við BL.