Á-listinn hlaut 31 atkvæði en S-listinn 22 atkvæði. Einn kjörseðill var auður.
Á kjörskrá voru 57. Alls kusu 29 á kjörstað og þá voru 25 sem kusu utan kjörfundar.
Kjörsóknin í Árneshreppi var því 94 prósent.
Sveitarstjórnarfulltrúar í Árneshreppi eru því:
- Sigrún Sverrisdóttir (Á)
- Þorgerður Lilja Björnsdóttir (Á)
- Róbert Hlífar Ingólfsson (Á)
- Arinbjörn Bernharðsson (S)
- Kristjana María S. Ásbjörnsdóttir (S)
Innviðaráðuneytið ógilti í vikunni íbúakosningar um sameiningu Árneshrepps og Kaldrananeshrepps sem fóru fram í mars vegna ágalla. Í frétt Vísis segir að sveitarstjórnum bæri að ákveða í sameiningu hvenær önnur kosning færi fram og að kosið yrði til sveitarstjórna í báðum sveitarfélögum í dag.