Ástæðan er þó ljós því verið var að afhjúpa söguskilti um veru 130 kanadískra hermanna árið 1940 í bæjarfélaginu, sem höfðu það hlutverk að sjá um varnir Suðurlands í síðari heimsstyrjöldinni.
„Fjölmargir bæjarbúar mættu við afhjúpun söguskiltisins síðdegis í gær, auk sex hermanna frá kanadísku hersveitinni. Eftir nokkur ávörp var söguskiltið afhjúpað við Lystigarðinn í tilefni af 80 ára afmæli bæjarfélagsins. Fróðlegar upplýsingar eru á skiltinu, auk ljósmynda.
„Þeir komu hingað til lands í júlí 1940 og þeim var falið að sjá um varnir Suðurlands og settu upp höfuðstöðvar hér. Þeir voru hér í þrjá til fjóra mánuði og þetta var fyrsta verkefni þeirra í síðari heimsstyrjöld,” segir Njörður Sigurðsson, sagnfræðingur og bæjarfulltrúi í Hveragerði.
Var þetta fjölmennur hópur hermanna á sínum tíma?
„Já, þetta voru um 130 manns en það voru jafn margir og íbúar Hveragerðis voru á þeim tíma og hafði þess vegna veruleg áhrif á samfélagið hér að fá svona fjölda ungra manna hingað inn í Hveragerði,” segor Njörður.
Sendiherra Kanada á Íslandi, Jenni Hill, er alsæl með nýja söguskiltið en sams konar skilti verður sett upp á frönsku í Montreal í Kanada síðar á árinu. Saga hersveitarinnar og tengsl hennar við Hveragerði munu þannig verða varðveitt á báðum stöðum.
„Ég er mjög hamingjusöm með skiltið, ég gæti ekki verið hamingjusamari,“ segir Jenny.
Bæjarstjóri Hveragerðisbæjar fékk að gjöf hermannabúning eins og hermennirnir klæddust 1940. Hann er mjög stoltur af nýja skiltinu og sögunni sem kemur þar fram.
„Þetta er bara til fyrirmyndar, þetta var ótrúlega falleg athöfn og þvílíkur heiður að fá þessa gesti með gjafirnar sem þeir koma með og hvernig þeir nálgast þetta verkefni með okkur,” segir Ingimar Guðmundsson.
Heldur þú að það komi einhvern tímann aftur hermenn í Hveragerði?
„Það er erfitt að segja en vonandi verður það þá í svona góðum og fallegum heimsóknum,” segir Ingimar bæjarstjóri hlæjandi.