Borgarfulltrúarnir Kjartan Magnússon og Marta Guðjónsdóttir leggja í dag fram tillögu á borgarstjórnarfundi þess efnis að götuheiti við nýja Landspítalann verði endurskoðuð og göturnar kenndar við heilbrigðisstarfsfólk sem lagt hefur mikið af mörkum í þágu lækninga og hjúkrunar.
Í núverandi deiliskipulagi eru göturnar nefndar eftir íslenskum lækningajurtum, en borgarfulltrúunum þætti vert að minnast heilbrigðisstarfsfólks sem lagt hefur stóran skerf af mörkum í þágu lækninga og hjúkrunar hér á landi og nefna göturnar eftir þeim.
Afrekið flestum gleymt
Til slíkra frömuða eru í tillögunni talin þau Bjarni Pálsson, fyrsti landlæknir Íslands; prófessorinn og læknisfræðifrumkvöðullinn Níels P. Dungal; Helgi Ingvarsson, brautryðjanda í meðferð við berklum hér á landi og Kristín Ólafsdóttir, sem lauk læknisfræðiprófi frá Háskóla Íslands fyrst allra kvenna, og sérstök áhersla lögð á hin síðastnefnda: Niels Finsen.
„Niels Finsen hlaut Nóbelsverðlaunin í læknisfræði árið 1903 en það afrek hans er flestum gleymt,“ segir í tillögunni en ekki ómerkara fólk en Marie Curie og Björnstjerne Björnsson munu hafa hlotið sömu verðlaun það ár.
Faðir Niels, Hannes Finsen, var íslenskur en móðir hans, Johanne Formann, var dönsk og fæddist hann sjálfur í Færeyjum þar sem faðir hans gegndi embætti landfógeta, amtmanns og síðast stiftamtmanns.
Nielsgötur í þremur heimsálfum – en ekki hér
Niels lauk stúdentsprófi frá Lærða skólanum í Reykjavík árið 1882 og síðan embættisprófi í læknisfræði frá háskólanum í Kaupmannahöfn, að því er segir í tillögu borgarfulltrúanna.
„Rannsóknir hans á áhrif sólar á heilsu fólks þóttu byltingarkenndar. Niels lést árið 1904, 43ja ára að aldri. Í þremur heimsálfum má finna götur sem kenndar eru við Niels Finsen. Hér er hans ekki minnst.“
Þá benda þau á að aðaltorg Landspítalareitsins sé einungis nefnt Aðaltorg á uppdráttum, en þykir sjálfsagt að það hljóti heiti og verði kennt við nóbelsverðlaunahafann.

