Viðgerð á spenni í Búrfellsvirkjun sem bilaði á miðvikudaginn er á lokametrunum. Vegna bilunar og viðhalds hjá orkuframleiðendum var minna afl til reiðu í kerfinu en ella.
Í samningum Landsnets við notendur, meðal annars við Kalkþörungaverksmiðjuna á Bíldudal, eru ákvæði um skerðingar sem voru virkjaðar þegar bilunin kom upp. Að sögn öryggisstjóra Landsnets voru þessar skerðingar virkjaðar þegar bilunin kom upp.
Ragnhildur Sverrisdóttir, upplýsingafulltrúi Landsvirkjunar, segir að bilunin hafi ekki verið mjög alvarleg.
„Viðgerð á spenninum í Búrfelli hefur sóst ágætlega og er á lokametrunum og við stefnum að því að stöðin verði komin í fullan rekstur um helgina.“
Allir fá þá orku sem þarf
Halldór Halldórsson, öryggisstjóri Landsnets, segir öllum skerðingum lokið.
„Þeim skerðingum sem Landsnet þurfti að grípa til vegna alvarlegrar bilunar í orkuframleiðslu lauk klukkan tíu í fyrradag, sem sagt klukkan tíu um kvöldið. Þannig að samkvæmt okkar bestu vitund þá er bara eðlilegt ástand í raforkukerfinu og allir að fá þá orku sem þarf,“ segir Halldór.
Halldór Halldórsson, forstjóri Íslenska kalkþörungafélagsins og alnafni öryggisstjórans, staðfestir að Landsnet hafi létt á öllum orkuskerðingum. Hann segir að framleiðsla í Kalkþörungaverksmiðjunni sé komin aftur af stað og að starfsemi sé í eðlilegum skorðum.