Lögregla og sjúkrabílar voru kallaðir til vegna áreksturs í Hamraborg í Kópavogi síðdegis.
Samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu missti ökumaður stjórn á bíl sínum og hafnaði uppi á umferðareyju.
Upplýsingar um líðan ökumanns liggja ekki fyrir.