„Þetta hefur áhrif á þrjú skip af tíu, Dettifoss, Brúarfoss og Selfoss, en þau sigla á gulu og rauðu leiðinni. Verkfallið mun ekki hafa nein áhrif á innflutning í þessari viku eða næstu viku, en einhver áhrif á útflutning á þessum leiðum.“
Þetta segir Harpa Hödd Sigurðardóttir, framkvæmdastjóri mannauðs- og samskiptasviðs Eimskips, í samtali við mbl.is, spurð um áhrifin af verkfalli háseta og bátsmanna á framangreindum þremur skipum félagsins.
Rauða leiðin og gula leiðin
Dettifoss og Brúarfoss sigla bæði á svokallaðri rauðri leið sem er til og frá Árósum, Helsingborg, Bremerhaven, Færeyjum, Íslandi og Grænlandi. Auk Dettifoss og Brúarfoss siglir Tukuma Arctica frá Royal Arctic Line á þeirri leið á vegum félagsins.
Selfoss siglir aftur á móti á þeirri gulu sem m.a. á milli Íslands, Færeyja og Bretlands. Á þeirri leið siglir einnig Skógafoss.
Ekki boðað til fundar hjá sáttasemjara
Harpa Hödd segir erfitt að segja til um hver áhrif verkfallsins verða nákvæmlega nú á fyrstu dögum verkfallsaðgerðanna, en verkfallið hófst sl. mánudag.
Hins vegar sé unnið að flutningsmálum dag frá degi, en meiri áhrifa gæti á rauðu leið félagsins, enda verkfall á tveimur skipum á þeirri leið.
„Við vonumst til þess að við náum að leysa úr þessari deilu sem allra fyrst,“ segir hún og nefnir að staðan sé metin daglega. Ekki hafi þó verið boðað til fundar hjá ríkissáttasemjara í kjaradeilunni.