Verðlag stóð nánast í stað en verðbólga hjaðnar lítið
Mest til hækkunar í mánuðinum vó kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði. Á móti lækkaði verð á eldsneyti verulega vegna skattalækkunar á bensín og dísel.
Verðlag stóð nánast í stað milli mánaða í maí þrátt fyrir talsverða lækkun á eldsneytisverði í kjölfar lækkunar virðisaukaskatts á bensín og dísel. Verðbólga mælist nú 5,1 prósent, sem er lækkun frá síðasta mánuði, þegar hún mældist 5,2 prósent.
Samkvæmt tölum sem Hagstofa Íslands birti í morgun hækkaði vísitala neysluverðs um 0,07 prósent frá apríl til maí. Hún mælist nú 684,3 stig. Vísitala neysluverðs án húsnæðis lækkaði hins vegar um 0,13 prósent milli mánaða.
Verðbólga yfir tólf mánaða tímabil hjaðnar því lítið þrátt fyrir nær óbreytt verðlag í maí og tímabundin áhrif skattalækkunar á eldsneyti. Vísitala neysluverðs án húsnæðis hefur hækkað um 4,6 prósent á sama tímabili.
Mest til hækkunar í mánuðinum vó kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði, eða reiknuð húsaleiga, sem hækkaði um 0,6 prósent. Áhrifin á vísitöluna voru 0,13 prósentustig.
Á móti lækkaði verð á eldsneyti verulega. Dísel lækkaði um 7,0 prósent og hafði 0,07 prósentustiga áhrif til lækkunar á vísitöluna. Bensín lækkaði um 7,3 prósent og dró vísitöluna niður um 0,14 prósentustig.
Lækkunin skýrist að stórum hluta af því að virðisaukaskattur á bensín og dísel var lækkaður úr 24 prósentum í 11 prósent þann 1. maí. Hagstofan metur heildaráhrif skattbreytingarinnar til 0,32 prósenta lækkunar á vísitölu neysluverðs.
Ef eldsneytisverð væri reiknað með óbreyttum 24 prósenta virðisaukaskatti hefði díselverð hækkað um 3,9 prósent milli mánaða og bensínverð um 3,6 prósent, samkvæmt útreikningum Hagstofunnar.
Vísitala neysluverðs í maí gildir til verðtryggingar í júlí.