Verðbólga mælist 5,1% samkvæmt nýjustu mælingu Hagstofunnar og lækkar hún lítillega á milli mánaða. Í síðustu mælingu mældist hún 5,2% og þar áður 5,4%.
Á vef Hagstofunnar kemur fram að vísitala neysluverðs, miðuð við verðlag í maí 2026, sé 684,3 stig (maí 1988=100) og hækkar hún um 0,07% frá fyrri mánuði. Vísitala neysluverðs án húsnæðis er 546,3 stig og lækkar um 0,13% frá apríl 2026.
„Kostnaður vegna búsetu í eigin húsnæði (reiknuð húsaleiga) jókst um 0,6% (áhrif á vísitöluna 0,13%). Verð á dísel lækkaði um 7,0% (-0,07%) og verð á bensíni um 7,3% (-0,14%),“ segir á vef Hagstofu Íslands.
Bent er á að þann 1. maí hafi virðisaukaskattur á dísel og bensín verið lækkaður úr 24% í 11%.
„Ef verð á þessum eldsneytisgjöfum er reiknað með 24% virðisaukaskatti í stað 11% væri verð á dísel 3,9% hærra en fyrir mánuði (áhrif á vísitölu 0,04%) og verð á bensíni 3,6% hærra (0,07%). Heildaráhrif virðisaukaskattsbreytingarinnar á vísitölu neysluverðs eru því metin um 0.32% til lækkunar. Síðastliðna tólf mánuði hefur vísitala neysluverðs hækkað um 5,1% og vísitala neysluverðs án húsnæðis um 4,6%.“