Útlit er fyrir allt að 15 stiga hita á Austfjörðum í dag. Þar verður væntanlega þurrt og bjart. Í öðrum landshlutum er þó útlit fyrir skúrir.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Sunnan og suðvestan fimm til þrettán metrar á sekúndu og skúrir, en að mestu bjart austanlands. Hiti 7 til 15 stig, hlýjast á Austfjörðum.
Hægari vindur og skúrir á morgun, en vestan átta til þrettán með suðurströndinni síðdegis. Þurrt að kalla norðaustantil, en stöku skúrir síðdegis. Hiti 8 til 14 stig, mildast norðan heiða.