Frönsk unglingsstúlka lést í fagnaðarlátum í kjölfar sigurs Frakklands á Marokkó í átta liða úrslitum heimsmeistaramóts karla í knattspyrnu í gær.
Viðbragðsaðilar segja að stúlkan, sem var 17 ára gömul, hafi fallið af palli flutningabíls í Aulnoye-Aymeries nærri borginni Baubeauge. Stúlkan lenti undir flutningabílnum og var úrskurðuð látin á vettvangi. Bílstjóri flutningabílsins var handtekinn.
Þúsundir lögreglumanna um allt Frakkland fylgdust með fagnaðarlátum eftir leikinn við Marokkó í gær, sem endaði með 2-0 sigri Frakka.