Atkvæðagreiðslu þingsins um þingsályktunartillögu utanríkisráðherra verður í beinni á RÚV klukkan 15, en hægt er að fylgjast með yfirstandandi umræðum um tillöguna á RÚV 2 og í spilaranum hér efst í fréttavaktinni.
Aukaþingfundur hófst á Alþingi klukkan 10:30. Þar fer fram framhald seinni umræðu um þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald viðræðna um aðild Íslands að Evrópusambandinu, en þingfundi gærdagsins var slitið klukkan skömmu fyrir klukkan eitt í nótt.
Ljúka þarf seinni umræðunni og samþykkja þarf þingsályktunartillögu utanríkisráðherra í síðasta lagi í dag til að unnt verði að halda þjóðaratkvæðagreiðsluna 29. ágúst.