Stórfelld flugskeytaárás var gerð á Kænugarð, höfuðborg Úkraínu, fyrir skömmu að sögn hernaðaryfirvalda í landinu.
Fréttamenn AFP heyrðu miklar sprengingar, en stjórnvöld í Úkraínu höfðu varað við því að búist væri við stórri árás af hálfu Rússa.
„Höfuðborgin hefur orðið fyrir stórfelldri flugskeytaárás. Frekari árásir gætu verið yfirvofandi. Haldið ykkur í sprengjubyrgjum!“ skrifaði Tymur Tkachenko, yfirmaður hermála í Kænugarði, á Telegram.