Stefán Carlsson er fallinn frá

Bæklunarskurðlæknirinn Stefán Carlsson er fallinn frá, tæplega 77 ára að aldri.
Morgunblaðið greinir frá andláti hans.
Hann fæddist í Reykjavík 29. maí 1949 og lauk læknisprófi frá Háskóla Íslands árið 1976. Eftir sérnám í bæklunarskurðlækningum í Svíþjóð starfaði hann á Borgarspítalanum og síðar Landspítalanum, lengst af á slysa- og bráðamóttökunni í Fossvogi.
Stefán var meðal fyrstu lækna á þyrlum Landhelgisgæslunnar og starfaði um árabil með íslenska karlalandsliðinu í handknattleik. Hann var einnig meðal stofnenda Orkuhússins árið 2003 og gegndi formennsku í Bæklunarlæknafélagi Íslands.
Stefán sinnti fjölbreyttum félagsstörfum, meðal annars fyrir Val og Oddfellowregluna. Eftirlifandi eiginkona hans er Rannveig Ásbjörnsdóttir. Börn þeirra eru tvö og barnabörnin níu.