Karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás fyrir að hafa sparkað og stappað endurtekið á höfði karlmanns á þrítugsaldri á tónleikasvæði Kótelettunnar á Selfossi.
Árásin átti sér stað á hátíðinni árið 2022.
Í ákæru yfir manninum segir að brotaþoli hafi legið á jörðinni þegar ákærði sparkaði og stappaði á honum. Hann hlaut áverka víðs vegar á höfði, m.a. á vinstra auga og kjálka.
Lögmaður mannsins fer fram á að árásarmaðurinn greiði brotaþola 800 þúsund krónur í miskabætur.