Rúmenskur karlmaður á fertugsaldri sem var handtekinn í heimalandi sínu í byrjun mánaðarins grunaður um að hafa millifært á sig um 160 milljónir króna úr Arion banka er kominn aftur til Íslands.
Starfsmenn ríkislögreglustjóra sóttu hann til Rúmeníu fyrir tæpum tveimur vikum en áður hafði dómstóll í landinu ákveðið að maðurinn yrði framseldur til Íslands.
Ekki farið fram á gæsluvarðhald
Maðurinn sætir farbanni en ekki var farið fram á gæsluvarðhald yfir honum. Að sögn Agnesar Óskar Marsellíusardóttur, lögreglufulltrúa hjá miðlægri deild lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu, kröfðust rannsóknarhagsmunir þess ekki að hann yrði hnepptur í varðhald, enda tókst að endurheimta mjög mikið fé á forstigum málsins.
Maðurinn er talinn hafa keypt sér bíl fyrir hluta fjárhæðarinnar og farið á honum úr landi um borð í Norrænu. Um var að ræða BMV jeppa og til stendur að flytja hann aftur til Íslands. Talið er að maðurinn hafi verið einn að verki er hann millifærði á sig peninginn.
Lítil eftirvinnsla
Aðspurð segir Agnes Ósk rannsókn málsins ganga mjög vel. „Það gerðist svo rosalega mikið fyrsta sólarhringinn, sem verður til þess að eftirvinnslan verður ekki mjög mikil. Samskiptin við lögregluna í Rúmeníu hafa verið mjög góð,” segir hún.
