Atburðarásin í stórri aðgerð sænskrar lögreglu og tollgæslu í Enskede í Suður-Stokkhólmi á föstudaginn, sem greint var frá hér á mbl.is, er nú öll að skýrast. Veittu löggæslumenn bifreið eftirför sem stöðvuð var í Enskede og þrennt handtekið.
Fólkið situr nú allt í gæsluvarðhaldi, grunað um stórfellt fíkniefnabrot, en tvö hinna handteknu, maður og kona, voru í bifreiðinni þegar eftirförin hófst og barn með þeim. Á óþekktum tímapunkti tókst konunni að koma sér út úr bifreiðinni og hafði barnið með sér.
Eins og fram kom í fréttum á föstudaginn var skoti hleypt af í aðgerðinni, hvellur var til vitnis um það og greindi sænska dagblaðið Aftenposten enn fremur frá því að tómt skothylki hefði fundist á vettvangi.
Lögregla neitaði að hafa skotið
Í samtali við sænska ríkisútvarpið SVT á föstudaginn vísaði lögregla því á bug að einhver úr hennar röðum hefði beitt skotvopni en vildi ekki tjá sig um hvort aðrir en lögregla hefðu skotið.
Frá Michaelu Linderoth upplýsingafulltrúa tollgæslunnar bárust þær upplýsingar að tollurinn kannaðist ekki við að tollvörður hefði hleypt af skoti við aðgerðina.
Nú er það hins vegar komið í ljós að það var tollgæslumaður sem skaut og sagði Linderoth upplýsingafulltrúi við SVT í dag að það hefði hann gert í nauðvörn, annar karlmannanna, sem handteknir voru, ók bifreið sinni á bifreiðar lögreglu og tollgæslu og við það tækifæri skaut tollvörðurinn á bifreiðina.
Ökumaðurinn liggur nú undir grun um tilraun til manndráps auk fíkniefnabrotsins.
Óljóst hvenær konan og barnið fóru úr bifreiðinni
Stóra spurningin er hins vegar hvort tollgæslan hafi skotið á bifreiðina með barnið innanborðs. Pär Kramming héraðssaksóknari segir við SVT að konan hafi einhvern tímann meðan á eftirförinni stóð náð að yfirgefa bifreiðina ásamt barninu en óljóst sé hvort þetta hafi gerst fyrir eða eftir að ökumaðurinn ók á bifreiðar löggæslumannanna og tollvörðurinn skaut á hann.
Hyggst saksóknari nú að eigin sögn ganga í að kanna þetta.
Enginn meiddist þó við aðgerðina í Enskede á föstudaginn.