Marco Rubio, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir hugsanlegt að í dag verði tilkynnt um endalok stríðsins milli Bandaríkjanna og Írans.
„Ég held að það sé kannski möguleiki á því á næstu klukkustundum að heimsbyggðin fái góðar fréttir,“ sagði Rubio þegar hann ræddi við fréttamenn í Nýju Delí á Indlandi. Hann sagði að í samningi yrði tekið á siglingum um Hormús-sund og kjarnorkuvopnaþróun Írana.
Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, fagnaði því að árangur virtist vera að nást í friðarviðræðum Írana og Bandaríkjamanna. Hann sagði að í framhaldinu yrði reynt að tryggja frið til langrar framtíðar.