Rafmagnslaust er á hluta Suðurnesja eftir að þrjár háspennulínur Landsnets leystu út um klukkan fjögur síðdegis.
Í tilkynningu Landsnets segir að útslátturinn hafi valdið því að Svartsengisvirkjun sé úti. Einnig sé rafmagnslaust í Grindavík og Bláa lóninu.
Unnið er að greiningu bilunarinnar en ekki liggur fyrir hversu lengi rafmagnsleysið varir.
Línurnar sem leystu út eru Svartsengislínur 1 og 2 og Njarðvíkurlína.
„Í Svartsengisvirkjun er nú keyrt á varaflsstöðvum til að tryggja að ljós- og stjórnbúnaður virkjunarinnar virki svo unnt sé að halda heita- og kaldavatnsframleiðslu orkuversins gangandi. Raforkuframleiðsla í Svartsengi liggur niðri þar til línurnar komast í gagnið á nýjan leik,“ segir í tilkynningunni.