Oddvitar Sjálfstæðisflokksins, Viðreisnar og Framsóknarflokksins hafa náð samkomulagi um að mynda nýjan meirihluta í Reykjavíkurborg. Þetta herma heimildir Vísis. Boðað hefur verið til blaðamannafundar í Viðey upp úr klukkan ellefu.
Um er að ræða einn þann meirihluta sem fólki þótti líklegur en hinn valkosturinn var tveggja flokka meirihluti Sjálfstæðisflokks og Miðflokks, en Ari Edwald oddviti Miðflokksins greindi frá því í gær að hann hefði ekki heyrt í oddvita Sjálfstæðisflokks síðan fyrir helgi.
Nánar má lesa um málið hjá Vísi.