Mikil spenna ríkir um úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar um ESB-aðildarviðræður á laugardag. Samkvæmt nýrri skoðanakönnun Maskínu fyrir Vísi er mjög mjótt á munum. 51,3 prósent þeirra sem hafa tekið afstöðu segjast ætla að merkja við já á kjörseðlinum en 48,7 prósent nei.
8,5 prósent eru óákveðin og 3,4 prósent neita að svara.
Niðurstöður könnunarinnar voru birtar í upphafi Pallborðsins á Vísi. Þar takast á þau Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra, Jónas Hagan Guðmundsson, einn stofnenda Já til að sjá, Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, og Veigar Pétursson, forstjóri Fenris Creations.
Samkvæmt Þjóðarpúlsi Gallup, sem var birtur 14. ágúst, ætluðu 51,5 prósent að segja já en 48,5 nei. Vikmörkin voru 2,5 prósentustig á hvorri fylkingu um sig og því var ekki tölfræðilega marktækur munur á þeim sem sögðu já og þeim sem sögðu nei. Sjö prósent þeirra sem svöruðu Þjóðarpúlsinum voru óákveðin og eitt prósent vildi ekki svara.