Hópur ungra manna réðst að eldri manni í miðbæ Reykjavíkur í morgun.
Á myndskeiði sem er í dreifingu á samfélagsmiðlum má sjá hvernig mennirnir létu höggin dynja á manninum og spörkuðu í hann er hann lá í götunni.
Í myndskeiðinu, sem tekið er upp á Lækjargötu, má sjá þá eiga í orðaskaki við eldri manninn sem endar með því að hann fleygir flösku í átt til þeirra.
Spörkuðu í hann er hann lá
Í kjölfarið ráðast þeir að manninum og berja hann í höfuðið með þeim afleiðingum að hann dettur aftur fyrir sig, utan í leigubíl sem stóð kyrr á götunni.
Þegar maðurinn liggur byrja fimm þeirra að sparka í hann á meðan annar stendur utan við hópinn og reynir að koma þeim burt.
Maðurinn, sem mennirnir kalla „jólasveininn“ í myndbandinu, staulast svo á fætur á meðan einn þeirra hrækir á hann.