Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um - Vísir

Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um - Vísir

Móðirin sem Banda­ríkja­menn deila um - Vísir

Málið hefur orðið að miklu deilumáli í Bandaríkjunum. Annars vegar eru þeir sem hafa sýnt móðurinni samhug og segja málið beina kastljósinu að skorti á geðheilbrigðisþjónustu fyrir nýbakaðar mæður. Þar á móti eru þeir sem telja að refsa beri henni að fullu enda hafi morðin verið skipulögð.

Móðirin heitir Lindsay Clancy. Hún er 36 ára fyrrverandi hjúkrunarfræðingur og bjó í Duxbury í Massachusetts ásamt þáverandi eiginmanni sínum, Patrick Clancy, og börnum þeirra þremur. Cora var fimm ára, Dawson þriggja ára og Callan átta mánaða.

Glímdi við alvarlega vanlíðan

Andlegri heilsu Clancy hrakaði eftir fæðingu Callans árið 2022. Hún glímdi við mikinn kvíða og svefnleysi og leitaði til nokkurra lækna og annarra meðferðaraðila. Geðlyfjum hennar var ítrekað breytt en Clancy taldi líðanina versna.

Í desember sagði hún Patrick og móður sinni að hún hefði hugsað um að skaða börnin. Systir hennar hefur borið fyrir dómi að Clancy hafi á sama tíma fengið sjálfsvígshugsanir daglega.

Lindsay Clancy hefur setið í hjólastól við réttarhöldin. Hún lamaðist fyrir neðan mitti eftir að hafa stokkið út um glugga á annarri hæð í sjálfsvígstilraun kvöldið sem hún banaði börnum sínum.

Clancy hringdi í neyðarlínuna, leitaði á bráðamóttöku og reyndi að komast í dagmeðferð. Hún fékk ekki inngöngu þar en lagði sig síðar inn á McLean-geðsjúkrahúsið. Hún var útskrifuð 5. janúar 2023, nítján dögum áður en börnin dóu. Enginn hafði varað Patrick við því að skilja hana eftir eina með þeim. AP hefur rakið meðferð Clancy og samskipti hennar við heilbrigðisstarfsfólk.

Daginn fyrir verknaðinn átti Clancy fjarfund með geðlækni. Hún virtist þunglynd og kvíðin en sagði hvorki frá röddum né áformum um að skaða börnin eða sjálfa sig.

Sendi eiginmanninn eftir lyfjum og mat

Þann 24. janúar 2023 fór Clancy með Coru til læknis, lék við börnin í snjónum og föndraði með þeim heima. Patrick hefur sagt að hún hafi virst í betra skapi en undanfarnar vikur.

Um kvöldið bað hún hann að sækja lyf fyrir Coru og kvöldmat fyrir fjölskylduna. Meðan hann var í burtu fór Clancy með börnin niður í kjallara og kyrkti þau hvert á fætur öðru með æfingateygjum. Síðan reyndi hún að svipta sig lífi og stökk út um glugga á annarri hæð hússins.

William Sullivan dómari hafnaði kröfu um að ógilda réttarhöldin eftir að sálfræðingurinn Kirk Heilbrun ræddi kaþólska trú Lindsay Clancy. Clancy hafði sagt honum að hún teldi sig og börnin myndu sameinast á himnum eftir dauðann. Þegar Heilbrun skýrði mat sitt á frásögn hennar vísaði hann til þess að sjálfsvíg teldist dauðasynd samkvæmt kaþólskri trú. Verjendur sögðu trúarkenningar málinu óviðkomandi og til þess fallnar að hafa áhrif á kviðdóminn. Sullivan fyrirskipaði kviðdómendum að líta fram hjá ummælunum.

Patrick kom heim skömmu eftir klukkan sex og fann Lindsay særða fyrir utan húsið. Hún sagði honum að börnin væru í kjallaranum. Cora og Dawson létust þetta kvöld. Callan var fluttur á sjúkrahús en lést nokkrum dögum síðar. Clancy lifði fallið af en er lömuð fyrir neðan mitti. AP hefur birt frásögn Patricks af kvöldinu og neyðarsímtalinu sem kviðdómurinn hlustaði á.

Deilt um geðrof og skipulagningu

Saksóknarar segja Clancy hafa skipulagt verknaðinn. Þeir benda á að hún hafi sent Patrick bæði í apótek og á veitingastað og kannað akstursleiðina í síma sínum. Læknar sem sinntu henni fyrir dauða barnanna sögðust ekki hafa séð merki um geðrof.

Réttargeðlæknirinn Avram Mack taldi hana hafa verið alvarlega þunglynda en samt getað greint rétt frá röngu og stjórnað gerðum sínum. Sálfræðingurinn Kirk Heilbrun taldi hana vera með geðhvörf af gerð tvö en hafnaði því að hún hefði verið í bráðu geðrofi. Hann taldi hana hafa ætlað að svipta sig lífi og sannfært sig um að börnin myndu þjást ef hún skildi þau eftir. AP greindi frá framburði sérfræðinga ákæruvaldsins. 

Stuðningskonur Lindsay Clancy fylgjast með réttarhöldunum í Plymouth. Hundruð kvenna hafa fylkt sér að baki henni og sagt mál hennar varpa ljósi á skort á geðheilbrigðisþjónustu fyrir konur eftir barnsburð.

Verjendur segja Clancy hafa fengið geðrof eftir fæðingu og að lyfjameðferðin hafi gert ástand hennar verra. Geðrof eftir fæðingu er sjaldgæft ástand sem getur valdið ofskynjunum, ranghugmyndum og miklum ruglingi. Talið er að ein til tvær konur af hverjum þúsund sem fæða barn fái slíkt geðrof. Langflestar þeirra skaða ekki börn sín, að því er fram kemur í umfjöllun AP um ástandið. 

Sérfræðingar verjenda töldu Clancy hafa verið í geðrofi og ófæra um að skilja að verknaðurinn væri rangur. Hún sagði þeim að karlmannsrödd hefði skipað henni að drepa börnin svo hún gæti síðan svipt sig lífi. Réttargeðlæknirinn Phillip Resnick taldi hana jafnframt hafa verið haldna þeirri ranghugmynd að börnin yrðu yfirgefin ef hún dæi. 

Hundruð sýndu Clancy stuðning

Um þrjú hundruð manns, langflestir konur, komu saman við dómshúsið í Plymouth í síðustu viku. Margar klæddust bleiku og báru skilaboð um að Clancy hefði þurft hjálp.

Nokkrar kvennanna sögðu frá eigin reynslu af geðrænum veikindum eftir barnsburð og sögðu konur ekki alltaf teknar alvarlega þegar þær leituðu aðstoðar. 

Stuðningskonur Lindsay Clancy klæddust bleiku sem sýnilegu merki um samstöðu við hana. Um þrjú hundruð manns komu saman við dómshúsið í Plymouth og vildu jafnframt vekja athygli á geðrænum veikindum eftir barnsburð og skorti á úrræðum fyrir konur í alvarlegum vanda.

Stuðningurinn hefur einnig verið gagnrýndur. Þar er bent á að Clancy hafi sjálf kyrkt börnin og að athyglin beinist í of miklum mæli að henni en of litlum að Coru, Dawson og Callan. Patrick hefur hins vegar sagst fyrirgefa fyrrverandi eiginkonu sinni og líta svo á að hún hafi verið alvarlega veik.

Kviðdómurinn tekur næst við

Réttarhöldin hófust 27. júlí og eru nú á fimmtu viku. Þriðjudagurinn 25. ágúst var tuttugasti dagur vitnaleiðslunnar. Verjendur hafa lokið sinni sönnunarfærslu en saksóknarar eiga eftir að ljúka við síðustu vitnin.

Þegar því lýkur flytja báðir aðilar lokaræður og málið verður lagt fyrir kviðdóminn. Samkvæmt lögum Massachusetts þarf ákæruvaldið að sanna að Clancy hafi getað skilið að verknaðurinn væri rangur og stjórnað gerðum sínum þrátt fyrir veikindin.

Verði Clancy fundin sek á hún yfir höfði sér ævilangt fangelsi án möguleika á reynslulausn. Verði hún talin hafa verið ósakhæf verður hún vistuð á geðsjúkrahúsi ríkisins.

Lokaræður eru væntanlegar síðar í vikunni. Engin dagsetning liggur fyrir um niðurstöðu kviðdómsins. 

#bandaríkjamenn #deila #móðirin #sem #vísir


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262925890d/modirin-sem-bandarikjamenn-deila-um

📰 Aðrar fréttir

Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
📅 10.10.2026 👁️ 1
Life-threatening Hurricane Isaias makes landfall in Florida
The storm took direct aim at Florida and is expected to impact Alabama, Georgia, and Louisiana.
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
📅 10.10.2026 👁️ 1
Öflugur jarðskjálfti af stærðinni 7,7
Jarðskjálfti af stærðinni 7,7 varð í Panama í gær, um klukkan 18:00 að íslenskum tíma. Skjálftinn átti upptök sín um tíu kílómetra frá litlum bæ, Pita...
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
📅 10.10.2026 👁️ 2
Trump og Pútín gera samning um dísilolíu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að hann hafi komist að samkomulagi við Vladimír Pútín Rússlandsforseta um afhendingu á 300.000 tonnum af dísilolí...
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 2
Vance ætlar ekki að horfa á af­tökuna í beinni - Vísir
Hasan, sem myrti þrettán manns í skotárás á Fort Hood-herstöðinni árið 2009, á að verða tekinn af lífi af aftökusveit í desember. Vance ræddi málið vi...
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
📅 09.10.2026 👁️ 2
CJP, Gyanesh Kumar: Tens of thousands of forces deployed as Delhi braces for cockroach protest
Several trains to Delhi have been cancelled and dozens of metro stations are shut to stop protesters from gathering.
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
📅 09.10.2026 👁️ 2
UK weather: a weekend of showers and sunshine ahead of warmer temperatures next week
With sunshine and showers forecast for the weekend, next week could see a return to some warmer temperatures but there will be gales for some.
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance ekki spenntur fyrir aftökunni í beinni - „Þá ætla ég ekki að horfa“
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna er ekki áhugasamur um fyrirhugaða aftöku á Nidal Malik Hasan sem myrti 13 manns í herstöðinni Fort Hood í Texas á...
Þekkir þú RÚV stefin?
📅 09.10.2026 👁️ 3
Þekkir þú RÚV stefin?
Upphafsstef þáttanna sem sendir hafa verið út á rásum RÚV í gegnum tíðina eru sem greypt inn í minni þjóðarinnar.Trompetleikarinn Tumi Torfason hefur ...
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
📅 09.10.2026 👁️ 3
Screams, haunting scenes and deadly hide-and-seek, as Celebrity Traitors heats up
Episode four saw another contestant killed off, a ghoulish mission near a graveyard and a spooky twist.
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fréttir Vikunnar: Fimleikaæfingar Dorritar og 40 ára afmæli Stöðvar 2
Bergild Festival fór yfir fréttir vikunnar í Vikunni með Gísla Marteini í kvöld. Ýmislegt bar á góma, til að mynda heimsókn Marco Rubio, utanríkisráðh...
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump's shock Russia deal highlights mounting pressure to curb fuel prices
The US president hopes to ease his party's pain before next month's midterm elections, writes the BBC's North America correspondent.
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kolbeinn Stefánsson hjólar í fjölmiðla og háskólasamfélagið: „Við erum tilbúin að trúa öllu slæmu um karla“
Kolbeinn Stefánsson, dósent við félagsráðgjafardeild Háskóla Íslands, gagnrýnir harðlega hvernig íslenskir fjölmiðlar fjölluðu um umdeilda rannsókn á ...
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Skálanesbót – fuglarnir voru þar á undan kvíunum
Forspjall: Skálanes, landið, fólkið og fuglarnir
Trump rýfur einangrun Rússlands
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump rýfur einangrun Rússlands
Trump rýfur einangrun Rússlands Banda­ríkja­for­seti af­nem­ur við­skipta­bann Vest­ur­landa á olíu frá Rússlandi, sem átti að þvinga Vla­dimír Pútín ...
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
📅 09.10.2026 👁️ 3
Faðir nauðgaði 14 ára stúlku á meðan móðirin tók það upp á farsímann sinn
Foreldrar fjórtán ára stúlku í Indlandi hafa verið handteknir eftir hrottalegt kynferðisbrot gagnvart henni. Faðirinn nauðgaði stúlkunni á meðan móðir...
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
📅 09.10.2026 👁️ 3
JD Vance ætlar ekki að horfa á aftöku Hasans verði henni streymt
JD Vance varaforseti Bandaríkjanna segist ekki ætla að horfa á aftöku Nidals Hasans, fyrrverandi majórs í Bandaríkjaher, verði hún sýnd í beinni útsen...
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Skrúð­gangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu - Vísir
Chris Bryant, Norður-Írlandsmálaráðherra í bresku ríkisstjórninni, greindi frá ákvörðuninni í kvöld. Hún kemur í kjölfar nærri tveggja vikna átakastöð...
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
📅 09.10.2026 👁️ 3
Gengur ekki að fjöldaframleiða framandi ágenga tegund
Minkar og menn eru til umræðu á ráðstefnu sem er haldin í Norræna húsinu og er á vegum Samtaka um dýravelferð. Samtökin vilja Ísland án loðdýraræktar ...
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
📅 09.10.2026 👁️ 3
Three men found guilty of murdering two Australian surfer brothers and US friend
The bodies of Jake and Callum Robinson and their friend Carter Rhoad were found at the bottom of a well.
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
📅 09.10.2026 👁️ 3
Reynir Valgeirsson skrifar: Selstaðavík – landið, hafsbotninn, byggðin og versta hamfarasviðsmyndin
Forspjall: Selstaðavík, landið, hafsbotninn og byggðin:Áður en sjálf hamfarasviðsmyndin er rakin þarf að sjá staðinn fyrir sér sem eina heild. Selstað...
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
📅 09.10.2026 👁️ 3
Kvartaði yfir Sjúkratryggingum og heilbrigðisráðuneytinu vegna andláts dóttur sinnar á erlendu sjúkrahúsi - Alma beðin um almennar upplýsingar vegna málsins
Umboðsmaður alþingis telur ekki tilefni til að halda áfram meðferð kvörtunar sem maður nokkur lagði fram vegna andláts dóttur hans á sjúkrahúsi í ónef...
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump samdi við Pútín um dísel - Vísir
Bandaríkjastjórn hefur samhliða þessu slakað tímabundið á höftum á rússneskum orkufyrirtækjum svo olían komist á markað. Trump greindi frá samkomulagi...
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
📅 09.10.2026 👁️ 3
Sóttvarnarráðstöfunum aflétt í Rússlandi
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin kallar eftir því að rússnesk stjórnvöld deili gögnum um andlát starfsmanns á rannsóknastofu. Grunur vaknaði um að hún hefð...
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
📅 09.10.2026 👁️ 3
Aukin heilsuefling eldra fólks gæti sparað 20 milljarða á ári
Hægt væri að spara ríkissjóði 20 milljarða á ári með því að seinka vistun þúsund manns á hjúkrunarheimili um eitt ár.Þetta segir Janus Guðlaugsson íþr...
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
„Við erum næstum að kæfa fram­halds­skóla­stigið“ - Vísir
Í framsögu Magnúsar Þórs Jónssonar, formanns Kennarasambands Íslands, á fundinum kom fram að skólakerfið verði ekki byggt með skyndilausnum frá einu k...
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fjölbragðaglímumaður handtekinn eftir ólöglegt tak á 75 ára dómara sem dó í hringnum
Fjölbragðaglímukappi í Mexíkó hefur verið handtekinn eftir að hafa tekið 75 ára gamlan dómara ólöglegu glímutaki. Dómarinn lést í kjölfarið.Miðillinn ...
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
📅 09.10.2026 👁️ 3
Ölgerðin sögð hafa rutt samkeppni úr vegi með kröfu um einkasölu
Samkeppniseftirlitið réðst í húsleit hjá Beru, móðurfélagi Ölgerðarinnar, í morgun vegna gruns um að Ölgerðin hefði gerst sek um misnotkun á markaðsrá...
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
📅 09.10.2026 👁️ 3
Drumcree: Secretary of state Sir Chris Bryant to ban the Drumcree parade
The parade has led to a stand-off between Orangemen and nationalist residents of the Garvaghy Road in Portadown lasting almost two weeks.
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Vance biðlar til ungra reiðra manna - Vísir
Miklu púðri hefur að undanförnu verið varið í að ná til ungra bandarískra manna og hefur JD Vance varaforseti verið fenginn sérstaklega í það verkefni...
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
📅 09.10.2026 👁️ 3
Fordæma það að Pillay hafi fengið friðarverðlaun Nóbels
Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels sakar Navi Pillay, friðarverðlaunahafa Nóbels í ár, um gyðingafordóma. Pillay hefur kallað stríðsrekstur Í...
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 3
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky criticises 'gift to Putin'
Ukraine's president said allowing Russia to sell petroleum products would prolong a war that must be ended.
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
📅 09.10.2026 👁️ 2
Trump announces deal for Russian diesel as Zelensky calls it a 'gift to Putin'
Ukraine's president sharply criticised the move, calling it an "investment in war that must be ended, not prolonged".
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
📅 09.10.2026 👁️ 4
Arion banki krefst tuga milljóna frá huldufyrirtæki sem stýrt er af manni sem finnst ekki
Arion banki hefur stefnt fyrirtæki, sem lítið fer fyrir og ekki virðast finnast merki um á skráðu heimilisfangi þess, til greiðslu um 83 milljóna krón...
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
📅 09.10.2026 👁️ 4
Commentator Katie Zacharia picked as new White House press secretary
The conservative commentator currently works as a communications adviser at Trump Media & Technology Group.
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir - Vísir
Greint er frá því í dagbók lögreglunnar að þetta hafi gerst í umdæmi lögreglustöðvar tvö sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi.  ...
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
📅 09.10.2026 👁️ 4
Man arrested for allegedly setting fire to a dog in south Tenerife
A man has been arrested in Adeje, south Tenerife, on suspicion of burning a dog alive, in a disturbing case that has also exposed wider concerns about...
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
📅 09.10.2026 👁️ 4
JD Vance casts doubt on firing squad execution and says he won't watch it
The planned execution of Nidal Hasan by firing squad would be the first military execution in more than 60 years.
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigurveig I. Jónsdóttir er látin
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrverandi fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka, er látin 83 ára að aldri.Þetta kemur fram ...
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Seldu ó­vart hjól við­skipta­vinar - Vísir
Nytjamarkaðurinn lýsti eftir kaupandanum á samfélagsmiðlum í dag. Um rautt reiðhjól hafi verið að ræða sem selt hafi verið fyrir slysni enda nóg af öð...
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Sigur­veig I. Jóns­dóttir er látin - Vísir
Sigurveig I. Jónsdóttir, fyrrum fréttastjóri Fréttastofu Stöðvar 2 og upplýsingafulltrúi Íslandsbanka lést í dag, 9. október. Sigurveig fæddist í Reyk...
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þing­menn laumuðust í laugina eftir lokun - Vísir
Þingmenn Norðausturkjördæmis fóru í sund í Selárlaug í Vopnafirði eftir lokun í kjördæmaviku. Sveitarstjórnarfulltrúi er sagður hafa gefið leyfi fyrir...
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
📅 09.10.2026 👁️ 4
„Skemmtilegt hvernig okkar bókmenntaflóra hefur orðið ríkari með fólki sem hefur hingað flutt“
„Þau eru auðvitað stórkostleg og ég byrja á því að óska henni til hamingju,“ segir Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra, inntur ...
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing - Vísir
„Ég get staðfest að ég heyrði í nokkrum félögum úr verkalýðshreyfingunni um þetta og sömuleiðis að ég er ekki að fara fram,“ segir Katrín í skriflegu ...
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
📅 09.10.2026 👁️ 4
Fimm ára fangelsi fyrir tilraun til manndráps í bílakjallaranum við Höfðatorg
Kareem M. M. Abufarah hefur hlotið fimm ára fangelsisdóm fyrir tilraun til manndráps með því að hafa ekið á mann á miklum hraða í bílakjallaranum við ...
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
📅 09.10.2026 👁️ 4
Ert þú með puttann á púlsinum? Taktu fréttakvissið - RÚV.is
Hér eru tíu spurningar úr fréttum vikunnar. Veistu hvaða bandaríski ráðherra kom í heimsókn til Íslands, hvaða land ætlar ekki að taka þátt í Eurovisi...
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
📅 09.10.2026 👁️ 4
Dóra Sif Tynes: Bókun 35 gengur út á að Íslendingar séu jafnsettir öðrum borgurum EES
Það er alveg ljóst að bókun 35 tekur aðeins til jafnsettra laga, þ.e.
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
📅 09.10.2026 👁️ 4
Hrafnhildur hafði ekki áhyggjur af fæðingarblettinum en svo kom annað í ljós
„Ég var í rauninni bara mjög heppin,“ segir Hrafnhildur sem greindist með sortuæxli.
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 4
Bein út­sending: Af minkum og mönnum - Vísir
Málþingið hefst klukkan 17 og verður hægt að fylgjast með í beinu streymi í spilaranum að neðan. „Á dagskrá verða erindi íslenskra og erlendra sérfræð...
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
📅 09.10.2026 👁️ 3
Öllu til tjaldað í afmælisþætti Sýnar - Vísir
Þátturinn hefst klukkan 19:20 á Sýn og Vísi. Það verður nóg um að vera í þættinum þar sem margar af ástsælustu sjónvarpsstjörnum landsins rifja upp gó...
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
📅 09.10.2026 👁️ 4
Þingmenn stálust í sund eftir lokun í kjördæmaviku
Nokkrir þingmenn Norðausturkjördæmis skelltu sér í sund eftir lokun í Selárlaug í Vopnafirði í kjördæmaviku Alþingis í síðustu viku. Einn þeirra segir...