Óprúttnir aðilar tóku sig til í skjóli nætur og máluðu íslenska fánann yfir pride-fánann, sem er oft kallaður regnbogafáninn, sem prýtt hefur tröppurnar niður að Grafarvogskirkju í Reykjavík. Verknaðurinn hefur verið tilkynntur til lögreglu.
Arna Ýrr Sigurðardóttir, sóknarprestur í Grafarvogskirkju, segir verknaðinn hafa valdið skemmdum. „Tröppurnar eru blautar og það er jarðarför í dag. Málning hefur borist á líkbílinn sem ók yfir blauta málninguna.“
Hvatning til að lappa upp á fánann
Fátt er svo með öllu illt að ekki boði nokkuð gott, eins og skáldið ritaði forðum en sóknarpresturinn segir verknaðinn vera hvatningu til kirkjunnar að ráðast í að lappa upp á fánann, sem staðið hefur til í einhvern tíma.
„Við höfum boðið fólki að koma og hjálpa okkur. Það hefur alltaf verið rosa góður hópur af fólki sem hefur komið og þetta hefur verið alveg ótrúlega skemmtilegur viðburður. Við munum gera það núna. Það þarf bara að viðra auk þess að kirkjan er náttúrulega mjög ásetin vegna jarðarfara og annars þannig að við höfum ekkert mjög marga glugga.“
Arna, sem stödd er erlendis, fékk veður af verknaðinum í gegnum blaðamann í morgun en Rúv greindi fyrst frá. „Ég fékk bara upphringingu frá blaðamanni. Það var enginn kominn í kirkjuna þegar ég fékk símtalið og ég var nú að vona að myndinni hefði verið breytt með hjálp gervigreindar eða einhverju svoleiðis en það reyndist ekki raunin.“
Hafið þið girt svæðið af vegna þessarar útfarar sem er í dag?
„Mér skilst það. Það er ekki hægt að ganga tröppurnar því þær eru blautar. Þær eru náttúrulega bara hættulegar og fyrir utan það að það bara má ekki ganga á íslenska fánanum,“ segir sóknarpresturinn kíminn um þá staðreynd að óprúttnir aðilar hafi málað íslenska fánann yfir pride-fánann, sem prýtt hefur tröppurnar niður að Grafarvogskirkju um allnokkurt skeið.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem skemmdarverk hafa verið unnin á pride-fánanum við kirkjuna en hann var fyrir um fjórum árum merktur Antikristi með spreyi úr spreybrúsa.

