Ekki hefur borist kæra til lögreglu vegna skemmdarverka sem unnin voru á tröppunum niður að Grafarvogskirkju í nótt. Grafarvogskirkja hefur tilkynnt málið til lögreglu og verður það rannsakað sem „hatursglæpur“ að sögn Hjördísar Sigurbjartsdóttur, aðstoðaryfirlögregluþjóns hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu.
Hjördís segir í samtali við mbl.is að málið sé það nýtt að bíllinn sem fór í verkefnið sé ekki enn kominn inn á stöð á ný.
Myndavélakerfi á svæðinu
„Þetta er allt á frumstigi en þetta var tilkynnt til okkar bara núna í morgun. Þetta fer bara í rannsókn og það er myndavélakerfi á svæðinu, þannig að við erum að bíða eftir myndefni,“ segir Hjördís en myndefnið sem hún vísar til kemur úr myndavélakerfi kirkjunnar sjálfrar.
Spurð hversu langan tíma líklegt sé að taki að rannsaka mál sem þetta segir Hjördís erfitt að svara því. „Við vitum náttúrulega ekki hvers eðlis myndefnið er, sjónarhorn og gæði upptöku. Þekkjast einstaklingar? Þetta eru allt spurningar sem við getum ekkert svarað fyrr en við erum komin með myndefnið í hendurnar.“
Er líklegt að það verði eitthvað nýtt að frétta af málinu seinna í dag?
„Í sjálfu sér ekki. Við erum að bíða eftir myndefninu og þurfum að vinna úr því þegar það kemur. Þá náttúrulega snýst þetta um að reyna að bera kennsl á gerendur og kalla til yfirheyrslu.“